Gæsluvarðhaldskröfu yfir grunuðum barnaníðingi hafnað Jón Ísak Ragnarsson skrifar 9. janúar 2026 21:46 Héraðsdómari féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu yfir manninum. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara yfir manni sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn.
Karl Ingi Vilbergsson, varahéraðssaksóknari, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur haft málið til rannsóknar síðan það kom upp, taldi ekki ástæðu til að krefjast varðhalds yfir manninum þegar málið var á þeirra borði. Málið var sent á borð héraðssaksóknara í gær og strax í dag var gefin út ákæra á hendur manninum. Maðurinn sætir ákæru fyrir brot á þremur ákvæðum hegningarlaga, sem varða nauðgun, samræði eða önnur kynferðismök við barn, og húsbrot. Ekki talin þörf á varðhaldi með tilliti til almannahagsmuna Héraðssaksóknari krafðist gæsluvarðhalds yfir manninum, sem fór fyrir héraðsdóm klukkan sjö í kvöld. „Þetta er að okkar mati það alvarlegt afbrot að þetta má ekki bíða neitt og full ástæða til að hann sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna,“ sagði Karl Ingi við fréttastofu fyrr í dag. Svo fór að héraðsdómur hafnaði kröfunni og taldi ekki þörf á gæsluvarðhaldi yfir manninum með tilliti almannahagsmuna. Karl Ingi segir að ákæruvaldið hafi þriggja daga umhugsunarfrest til að kæra úrskurðinn. Næstu dagar fari í að skoða úrskurðinn og ákveða hvort hann verði kærður. Að svo stöddu sé ómögulegt að segja hvaða ákvörðun verði tekin. Á eftirfarandi myndbandi má sjá þegar maðurinn gengur rösklega úr húsnæði Héraðsdóms Reykjaness í átt að bíl sínum. Hildur Sunna Pálmadóttir, sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu nokkrum dögum eftir að maðurinn var handtekinn að þótt ekki hefði verið krafist gæsluvarðhalds yfir honum liti lögregla málið mjög alvarlegum augum. Hún sagði lögreglu hafa verið búna að tryggja alla þá rannsóknarhagsmuni sem tryggja þurfti og því hefði ekki verið talið að maðurinn gæti spillt rannsókninni yrði honum sleppt úr haldi. Því hefði ekki verið talin ástæða til þess að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Kúgaðist og öskurgrét Foreldrar drengsins stigu fram undir nafnleynd í viðtali við Heimildina í október. Þar sögðust þau hafa talið son sinn hafa vaknað við martröð þegar hann tilkynnti þeim eldsnemma morguns að maður hefði verið inni í herbergi hans. Móðirin kúgaðist og öskugrét eftir að hafa heyrt lýsingar drengsins á brotinu.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Hafnarfjörður Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira