Miðvarðaæði Liverpool Valur Páll Eiríksson skrifar 11. janúar 2026 11:46 Varnarmenn Liverpool hafa verið skugginn af sjálfum sér í vetur. Molly Darlington/Getty Images Englandsmeistarar Liverpool sanka að sér ungum miðvörðum í unglingalið félagsins á meðan margur hristir hausinn yfir því að félagið styrki ekki varnarlínu aðalliðsins.
Liverpool tilkynnti í vikunni um komu ungs senegalsks miðvarðar að nafni Mor Talla Ndiaye. Sá er hávaxinn 18 ára gamall, örvfættur miðvörður sem heillaði með HM U17 ára liða í nóvember og kemur frá senegalska liðinu Amitié, sem er í eigu Demba Ba, fyrrum framherja Newcastle og Chelsea, fyrir eina milljón punda. View this post on Instagram A post shared by Amitié Football Club (@amitiefc.official) Honum er ætlað beint inn í U21 árs lið Liverpool og er annar miðvörðurinn sem kemur þar inn í janúar. Áður hafði Liverpool fengið hinn 19 ára gamla Noah Adekoya frá Burnley, sem einnig leikur sem miðvörður, og mun spila með U21 árs liðinu. Noah Adekoya sleit samningi við Burnley í nóvember til að ganga til liðs við Liverpool nú í janúar.Alex Livesey/Getty Images Þriðji miðvörðurinn, hinn austurríski Ifeanyi Ndukwe er þá væntanlegur í sumar. Ndukwe er 17 ára gamall og leikur fyrir Austria Vín. Liverpool er að vinna kapphlaup við Inter Milan um undirskrift hans en hann má ekki fara milli landa fyrr en hann nær 18 ára aldri og fer því til Liverpool í sumar fyrir um 2,6 milljónir punda. Ifeanyi Ndukwe heillaði á HM U17 í Katar. Hér fagnar hann marki sem hann skoraði gegn Englandi á mótinu.Jurij Kodrun - FIFA/FIFA via Getty Images Ólíklegt þykir að þeir Ndiaye og Adekoya muni styrkja vörn aðalliðs félagsins á yfirstandandi leiktíð en varnarlína Liverpool er fámenn og hefur lekið inn mörkum. Liverpool hefur til að mynda fengið á sig 13 mörk eftir föst leikatriði á tímabilinu og óhætt að segja að titilvörnin hafi ekki gengið sem skyldi. Liðið rétt missti af Marc Guéhi, fyrirliða og miðverði Crystal Palace, á lokadegi félagsskiptagluggans í sumar þegar Palace hætti við sölu. Guéhi klárar samning við Palace í sumar og er sagður hafa verið áhugasamur um að semja við Liverpool þá. Það gæti hins vegar verið að breytast vegna slaks gengis liðsins og óvissuna sem fylgir. Manchester City er sagt hafa áhuga á því að fá Guéhi strax í janúar ef hægt er, vegna meiðsla í varnarlínunni þar. Þá er Arsenal áhugasamt um að fá Guéhi í sumar, auk þess sem Bayern Munchen og Real Madrid fylgjast með stöðunni.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira