„Við höfum ekkert að fela“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. janúar 2026 14:59 Inga Sæland er nýr mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðherra segir ráðuneytið ekkert hafa að fela hvað varði niðurstöður einstakra grunnskóla í samræmdum prófum. Nemendur í grunnskóla taka samræmd próf í fyrsta skipti í fimm ár í vor. „
Við höfum ekkert að fela og á meðan við reynum að halda hlutunum niðri í kjallara og enginn fær að sjá og við lítum á það sem viðurkennt þá munum við ekki viðurkenna vandann,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem ræddi við Smára Jökul Jónsson, fréttamann Sýnar, fyrr í vikunni um drög að nýrri reglugerð um fyrirkomulag samræmdra prófa. Drögin voru birt í byrjun vikunnar og fara yfir samræmt námsmat í íslensku og stærðfræði sem allir nemendur í fjórða, sjötta og níunda bekk grunnskóla gangast undir. Nú í vor taka öll börnin í áðurnefndum bekkjum í fyrsta skipti samræmd matspróf, kölluð stöðu- og framvindupróf, síðan samræmdu prófin voru lögð niður árið 2021. Í 11. grein draganna kemur fram að ráðherra muni birta skýrslu þar sem greint er frá niðurstöðum einstakra skóla í samanburði við landsmeðaltöl og eftir árgöngum. Tekið er fram að til að gögnin verði ópersónugreinanleg verði tryggt að nægilega margir nemendur standi að baki hverri mælingu. „Við þurfum frekar að horfast í augu við verkefnið og sjá hvernig við raunverulega stöndum út um allt land. Ég tel að það sé bara til góðs, þetta er allt uppi á borði,“ segir Inga. Endurskoðun birtingarinnar Nokkrar umsagnir hafa verið birtar í samráðsgátt stjórnvalda þar sem áformin um birtingu einkunnanna eru harðlega gagnrýnd. Meðal röksemdarfærslu er að hætta sé á að öll kennsla verði miðuð við að fá háa einkunn þar sem skólinn vilji ekki fá dóm fjölmiðla og að opinber birting á námsstöðu nemendahópa auki hættu á einelti. Kallað er eftir að 11. greinin verði endurskoðuð. Inga telur að birtingin muni ekki skapa togstreitu milli skóla. „Ég held frekar að við drögum fram verkefni sem fyrir höndum liggur. Við sjáum það betur svart á hvítu og öll þjóðin fær að sjá það, hvort ég sé til dæmis hér að tala tóma vitleysu eða sé eitthvað til í því sem ég er að segja,“ segir hún. „Gögnin munu sýna fram á það, þetta mun tala sínu máli og þjóðin, foreldrarnir, samfélagið, á hundrað prósent rétt á því að sjá hver staðan er í menntakerfinu okkar.“
Skóla- og menntamál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira