Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. janúar 2026 12:12 Logi Geirsson birti óumsemjanlega kröfulista í gærkvöldi þar sem hann telur upp kröfur sínar fyrir útsendingar Rúv á EM í janúar. Vísir/Hulda Margrét/Instagram Logi Geirsson, handboltasérfræðingur í Stofunni, birti á Instagram í gærkvöldi nokkuð skondinn kröfulista fyrir útsendingar Ríkisútvarpsins á EM í handbolta í janúar. Logi bað þar meðal annars um persónulegan aðstoðarmann, einkabílastæði og suðræna tónlist. Logi segir að um „létt grín“ hafi verið að ræða en hefur samt eytt myndinni.
Logi birti mynd af sér á Instagram-hringrás sinni um níuleytið í gærkvöldi undir yfirskriftinni „Óumsemjanlegt Broadcast Rider“ fyrir útsendingar á RÚV í janúar 2026. Hugtakið „rider“ merkir í sjónvarpi viðauki sem inniheldur auknar kröfur og þarfir leikara, gests eða kynnis. Myndin sem Logi eyddi. Listi Loga er í níu liðum og hver liður er nokkuð ítarlegur. Þar leggur hann fram kröfur um allt sem viðkemur útsendingunum, undirbúningi þeirra, aðgengi að stúdíóinu, förðun hans, leiðbeiningar til tökumanna, hljóðmanna og annarra. Við myndina skrifar Logi: „Er ég að biðja um of mikið?“. Myndin vakti þónokkra athygli þegar hann birti hana í gær og velti fólk fyrir sér hvort alvara væri dulin undir gríninu. Vísir sendi Loga skilaboð í morgun sem gat lítið rætt við blaðamann í síma þar sem hann var á ferðalagi vegna Evrópumeistaramótsins sem hefst á föstudaginn. Logi gat þó vel svarað fyrir myndina og sagði að um „létt grín“ hefði verið að ræða, einhverjir hefðu misskilið það en flestir fattað það. Hann sé þó að hugsa um að birta hana aftur á fyrsta leikdegi landsliðsins. Persónulegur aðstoðarmaður, suðræn tónlist og bílastæði Fyrsti liður Loga er titlaður „Umhverfi og menning“ og segir þar: „Engin neikvæðni, dramatík eða baktal, aðeins lausnamiðuð samskipti“ og „græna herbergið er safe zone.“ Annar liður heitir „Fókus & flæði“ og vill hann þar skýra tímalínu afhenta við komu, eina samskiptaleið, persónulegan aðstoðarmann frá komu til loka og tíu mínútna hljóðlátan glugga fyrir útsendingu. Sá þriðji tengist aðgengi og biður hann þar um „bílastæði á efra plani, merkt með keilu eða fá fjarsýningu fyrir bílakjallara,“ greiða leið að vinnusvæði og „engar óþarfa tafir eða bið, fá passa“. Dorrit og Inga taka á Loga.Vísir/Vilhelm Fjórði liðurinn tengist næringu og líkamlegu jafnvægi, vill hann þar ávexti og grænmeti, próteindrykki, vatn og kolsýrt vatn „kalt og aðgengilegt“ og kaffi eða te í hófi. Liðir fimm til sjö snúa að tæknilegum kröfum fyrir sminkur, útsendingastjórn, hljóðmenn og tökumenn. Við fimmta liðinn „Smink, hár & útlit“ segir: „Föt sléttuð og tilbúin við komu, smink og hár í rólegu, lokuðu rými, létt suðræn tónlist í bakgrunni, engar síðbúnar tilraunir með útlit og aukafatnaður til staðar og handklæði og auka gullpenni.“ Logi hefur mikla ástríðu fyrir handbolta. Tæknikröfur handa myndatökumönnum eru meðal annars að myndavélin komi ekki of nálægt nema Logi biðji um það, myndin sé stöðug og í náttúrulegri fjarlægð, ljósið sé stillt fyrir eðlilega húðtóna og myndramminn samþykktur fyrir útsendingu úr öllum sjónarhornum. Þá biður hann um að hljóðpróf sé klárað tímanlega og hann fái engar tæknilegar leiðbeiningar í eyrað í miðju tali. Áttundi liður fjallar um kröfur fyrir beina útsendingar: „Engar truflanir nema nauðsyn beri til“ og „engar leiðréttingar nema um staðreyndavillu sé að ræða.“ Eftir útsendingu vill hann fá vatn og létta næringu strax og að engin gagnrýni fari fram „í hita augnabliksins“ heldur síðar „í réttum ramma“. Að lokum setur hann fram grunnreglu: „Ef eitthvað truflar fókus – er það lagað. Gæði eru ekki tilviljun, heldur skipulag.“ „Hlakka til að byrja og núna förum við alla leið,“ skrifar hann svo neðst á myndina.
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Ríkisútvarpið Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO Sjá meira