Borgarstjóri fór með rangt mál Agnar Már Másson skrifar 16. janúar 2026 21:10 „Ég er ekkert að gramsa í þessu,“ sagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri, sem etur nú kappi við Pétur Marteinsson í prófkjöri Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri bað lögmenn borgarinnar um að kanna lóðarréttarsölu Péturs Marteinssonar, mótframbjóðanda síns í prófkjöri Samfylkingarinnar, þrátt fyrir að hafa þvertekið fyrir það í fjölmiðlaviðtölum. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg óskaði hún eftir upplýsingum um hvort Pétur hefði mátt framselja lóðarrétt samhliða sölu á félagi sínu. „
Nei, alls ekki,“ svaraði Heiða Björg í samtali við fréttastofu Sýnar fyrr í vikunni þegar fréttamaður spurði hvort það væri að hennar beiðni sem lögfræðingar borgarinnar könnuðu hvort Pétur, sem er mótframbjóðandi Heiðu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, hefði mátt framselja hlut sinn í uppbyggingu á lóðum í Skerjafirði árið 2023. Svör frá Reykjavíkurborg segja aftur á móti aðra sögu, en þar kemur fram að borgarstjóri hafi, með vísan til fréttar um mál Péturs, óskað eftir upplýsingum um hvaða reglur giltu um framsal lóðaréttar. Rúv greindi fyrst frá en Vísir hefur fyrirspurn borgarstjórans undir höndum. Fyrirspurnin var send frá skrifstofu borgarstjóra til lögfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði, sem könnuðu síðan málið. Seldi félag sem átti byggingarrétt í Nýja-Skerjó Sala Péturs á fyrirtæki árið 2023 er orðin að einu stærsta bitbeini í oddvitaslag Samfylkingarinnar í höfuðborginni. Pétur er einn stofnenda félagsins HOOS 1, sem sigraði hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar árið 2018 og fékk þannig úthlutaða lóð til íbúðauppbyggingar í Nýja Skerjafirði. Félagið greiddi tæpar 50 milljónir fyrir lóðina og átti að greiða 430 milljónir þegar hún yrði tilbúin. En Pétur og félagar ákváðu síðan að selja félagið árið 2023. Var það vegna mikilla tafa á áformunum að sögn Péturs. Enn eru engar framkvæmdir hafnar á umræddri lóð. Reykjavíkurborg sagði tafirnar vegna ágreinings ríkis og borgar um lóðina. Í byrjun janúar birti Heimildin umfjöllun um þetta félag en þar kom fram að Pétur hefði sagt sig úr stjórn samdægurs sem blaðamaður miðilsins spurði hann út í málið. Kom enn fremur að Pétur hefði þrýst á þáverandi borgarstjóra að koma uppbyggingunni í farveg, jafnvel eftir að hann hefði selt félagið. Pétur þvertók samt þar fyrir að hann hefði átt hagsmuni af því að lóðauppbygging hæfist inni á skilgreindu flugvallarsvæði á Reykjavíkurflugvelli, en deilur hafa lengi staðið yfir milli ríkis og Reykjavíkurborgar vegna Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri. Pétur græddi 69 milljónir króna af sölunni sem hann sagði hafa að stórum hluta farið í launakostnað. Heiða sagðist „ekkert vera að gramsa í þessu“ Síðustu helgi hafði mbl.is eftir Heiðu borgarstjóra að lögfræðingar Reykjavíkurborgar hefðu til skoðunar hvort Pétri hefði verið heimilt að framselja lóðarréttinn. Fram kemur í svari Reykjavíkurborgar við fyrirspurn Vísis að Heiða hafi föstudaginn 9. janúar óskað eftir upplýsingum um hvaða reglur giltu um framsal lóða. Rúv greindi fyrst frá fyrirspurn borgarstjórans. „[B]orgarstjóri óskar eftir upplýsingum um hvort rétt sé að óheimilt sé að framselja rétt sinn til lóðar til annars aðila sbr. eftirfarandi frétt [H]eimildarinnar og hvernig þessu var háttað í viðeigandi tilfelli,“ sagði í fyrirspurn frá skrifstofu borgarstjóra til lögfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði. Vísaði borgarstjóri þar til fyrrnefndrar fréttar Heimildarinnar um lóðarframsal Péturs. Hún hafi sent þessa beiðni vegna þess að spurningarnar hefðu komið upp í viðtali á Útvarpi Sögu, auk þess sem umfjöllun Heimildarinnar hafi vakið upp spurningar, samkvæmt svari borgarinnar. Í vikunni neitaði hún aftur á móti aðkomu sinni að málinu og sagðist ekki hafa vita nægilega mikið um málið til að tjá sig. „Þannig ég er ekkert að gramsa í þessu,“ sagði hún einnig í viðtali við Sýn á þriðjudag, 13. janúar. Lögfræðingarnir komust að þeirri niðurstöðu að HOOS 1 ehf. ætti enn lóðarréttinn þó félagið væri ekki lengur í eigu Péturs og félaga enda hefði engin beiðni um aðilaskipti borist, samkvæmt svörum borgarinnar við fyrirspurn Vísis frá því fyrr í vikunni.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Skipulag Reykjavík Jarða- og lóðamál Borgarstjórn Tengdar fréttir Andstæðan við lóðabrask Pétur Marteinsson sem vill leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavík segir að miklar tafir á uppbyggingaráformum hans og félaga í Nýja Skerjafirði hafi gert það að verkum að þeir hafi ákveðið að selja lóðina sem þeim var úthlutað á svæðinu. 15. janúar 2026 23:32 Neitar að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á Pétur Borgarstjóri Reykjavíkur neitar því að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á mótframbjóðanda sinn í oddvitaslag Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Mótframbjóðandinn gefur lítið fyrir athugun lögmannanna á lóðum sem voru í eigu félags hans, málið skipti hann engu máli. 13. janúar 2026 15:05 „Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Pétur Marteinsson, sem vill leiða lista Samfylkingar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum, segir að markmið hans hafi aldrei verið að kaupa lóðir til þess að selja síðar með hagnaði. Fram hefur komið að hann hafi fengið 69 milljónir króna í sinn hlut eftir sölu á lóð í Skerjafirði fyrir tveimur árum. Hann segir undirbúning byggingu ódýrra íbúða á lóðinni hafa verið aðalstarf hans í fimm ár. Fyrir það hafi hann verið með reiknuð laun upp á 25 milljónir króna, sem gerir 417 þúsund krónur á mánuði. 15. janúar 2026 13:23 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira
Andstæðan við lóðabrask Pétur Marteinsson sem vill leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavík segir að miklar tafir á uppbyggingaráformum hans og félaga í Nýja Skerjafirði hafi gert það að verkum að þeir hafi ákveðið að selja lóðina sem þeim var úthlutað á svæðinu. 15. janúar 2026 23:32
Neitar að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á Pétur Borgarstjóri Reykjavíkur neitar því að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á mótframbjóðanda sinn í oddvitaslag Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Mótframbjóðandinn gefur lítið fyrir athugun lögmannanna á lóðum sem voru í eigu félags hans, málið skipti hann engu máli. 13. janúar 2026 15:05
„Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Pétur Marteinsson, sem vill leiða lista Samfylkingar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum, segir að markmið hans hafi aldrei verið að kaupa lóðir til þess að selja síðar með hagnaði. Fram hefur komið að hann hafi fengið 69 milljónir króna í sinn hlut eftir sölu á lóð í Skerjafirði fyrir tveimur árum. Hann segir undirbúning byggingu ódýrra íbúða á lóðinni hafa verið aðalstarf hans í fimm ár. Fyrir það hafi hann verið með reiknuð laun upp á 25 milljónir króna, sem gerir 417 þúsund krónur á mánuði. 15. janúar 2026 13:23