Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. janúar 2026 16:50 Helgi Magnús kemur miðlinum Önnu Birtu Lionaraki til varnar í Facebook-ummælum og segir hana hafa séð fyrir kransæðastíflu sem dró hann nærri til dauða. Vísir/Lýður Valberg Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, segist hafa leitað til miðilsins Önnu Birtu Lionaraki sem hann segir að hafi séð fyrir að hann þyrfti að leita til læknis. Tveimur mánuðum eftir miðilsheimsóknina hafi hann greinst með lífshættulega kransæðastíflu.
Miðillinn Anna Birta Lionaraki var til umfjöllunar í nýjasta þætti Íslands í dag í gærkvöldi. Anna sagði þar frá því hvernig hún uppgötvaði miðilshæfileikana á unglingsaldri, reyndi að afneita þeim í fyrstu en gekkst á endanum við köllun sinni. Anna sagðist í þættinum geta séð inn í hjarta fólks og líkama, jafnvel einstök líffæri. Hún byggi jafnframt yfir ofurnæmni, gæti fundið lykt af skjaldkirtilsvandamálum eða ef konur væru barnshafandi. „Ég hef alveg labbað í Kringlunni og heyrt: „Ó mæ god, ég er að halda framhjá. Ég verð að gera eitthvað.“,“ sagði hún um hugsanalestur sinn sem hún þyrfti oft að loka á í daglegu lífi. „Talið varlega strákar mínir“ Grein upp úr þættinum var deilt á Facebook-síðu Vísis og fékk sú færsla töluverð viðbrögð. Vantrúaðir hæddust þar grimmt að yfirlýsingum miðilsins enda hljóma þær nokkuð fjarstæðukenndar fyrir hinn almenna mann. En þá barst Önnu stuðningsyfirlýsing úr óvæntri átt. „Talið varlega strákar mínir. Það er auðvelt að slá öllu upp í hótfyndni,“ skrifar Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, við færsluna og rekur síðan kynni sín af Önnu. Helgi Magnús leitaði til Önnu miðils og var ánægður með störf hennar.Vísir/Arnar „Ég þekki þessa konu af nokkrum netfundum með henni. Það gekk allt eftir sem hún sagði. Hlutir sem hún gat með engu móti séð fyrir eða vitað og áttu eftir að ske. Hún sá fyrir að ég þyrfti til læknis vegna hjartans, tveimur mánuðum áður en ég greindist með stórhættulega kransæðastíflu,“ skrifar hann í ummælunum. Anna væri ekki læknir og hefði ekki sjúkdómsgreint hann en hefði þó séð að það væri eitthvað að hjartanu hans sem þyrfti að skoða. „Ég hafði ekki hugmynd, var bara sextíu ára og í góðu formi reyki ekki og hraustur. Varð líklega með öðru til þess að ég lét tékka á mér af litlu tilefni tveimur mánuðum síðar og fékk greiningu. Þið megið kalla þetta tilviljun ef þið viljið.“ „Hún sér helling og aðalatriðin sem skipta mestu“ „Hún lýsti óstudd ýmsu öðru sem var að angra mig líkamlega af fullkominni nákvæmni. Hlutum sem hún gat ekki með nokkru móti séð í gegn um vefmyndavél,“ skrifar Helgi í ummælunum. „Hún nefndi nöfn persónur og leikendur í atvikum sem áttu eftir að henda mig án þess að ég gæti á nokkurn hátt tengt það fyrr en nokkrum vikum síðar þegar atvikin höfðu raungerst. Þessi hæfileiki er ekki eins og hún sé að horfa á kvikmynd svo hún getur ekki lýst atburðarás í smá atriðum, en útlínum og leikendum af mikilli nákvæmni.“ Fullyrðir hann að nánast allt sem hún sagði á fundum þeirra hefði hann séð í kjölfarið eða skömmu síðar. „Vissulega að því marki sem hún getur séð smáatriðin,“ skrifar hann „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni[,] það er allt í lagi. Ef þið haldið það. En það er ekki svo og ég er ekki að oftúlka orð hennar. Hún sér helling og aðalatriðin sem skipta mestu,“ skrifar hann að lokum.
Ísland í dag Heilbrigðismál Tengdar fréttir Snorri Másson leggi hornin á hilluna Nýja árið fer ágætlega af stað og ýmislegt spennandi í vændum, þá sér í lagi í pólitíkinni. Ísland í dag bankaði því uppá hjá Valgerði Bachmann, spámiðil og bað hana að lesa í árið 2026. Það gerir Valgerður með því að lesa í spil, stjörnumerki og skilaboð að handan. 8. janúar 2026 12:00 Frosti við Önnu miðil: Fáðu þér heiðarlega vinnu Hart var tekist á um starfsemi spámiðla í Íslandi í dag fyrr í kvöld. 2. nóvember 2015 20:16 Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Sjá meira
Snorri Másson leggi hornin á hilluna Nýja árið fer ágætlega af stað og ýmislegt spennandi í vændum, þá sér í lagi í pólitíkinni. Ísland í dag bankaði því uppá hjá Valgerði Bachmann, spámiðil og bað hana að lesa í árið 2026. Það gerir Valgerður með því að lesa í spil, stjörnumerki og skilaboð að handan. 8. janúar 2026 12:00
Frosti við Önnu miðil: Fáðu þér heiðarlega vinnu Hart var tekist á um starfsemi spámiðla í Íslandi í dag fyrr í kvöld. 2. nóvember 2015 20:16