Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. janúar 2026 07:56 Fulltrúi ICE heldur í skólatösku Liam Ramos í innkeyrslunni við heimili drengsins. Mynd/Columbia Heights Public Schools Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, tók fimm ára dreng í Minnesota höndum þegar hann var á leið sinni heim úr skólanum. Að sögn skólayfirvalda í Columbia Heights, úthverfi Minneapolis, voru drengurinn og faðir hans teknir höndum í innkeyrslunni heima hjá sér og sendir í varðhald í Texas.
Guardian greinir frá þessu og hefur eftir upplýsingum frá skóla drengsins sem heitir Liam Ramos. Liam, sem er nýlega orðinn fimm ára, er einn fjögurra barna í sama skólahverfi sem ICE hefur tekið höndum í aðgerðum stofnunarinnar á svæðinu á síðustu tveimur vikum. Þetta kom fram á blaðamannafundi skólastjóra í Columbia Heigths-hverfi í Minneapolis í gær. Skólastjórinn Zena Stenvik segist hafa keyrt að heimili feðganna þegar hún frétti af aðgerðum ICE sem beindust gegn þeim. Þegar hún mætti á svæðið hafi bíll föðurins ennþá verið í gangi en feðgarnir hafi þegar verið á bak og burt. ICE-liði hafi tekið Liam út úr bílnum, leitt drenginn að útidyrahurðinni og látið hann banka til að láta hleypa sér inn. Það hafi verið gert í þeim tilgangi „að sjá hvort einhver annar væri heima, og þannig nota fimm ára barn sem beitu,“ líkt og haft er eftir Stenvik. Annar fullorðinn einstaklingur á heimilinu hafi verið á svæðinu þegar atvikið átti sér stað og hafi biðlað til ICE-liða að fá að sjá um strákinn, svo hann þyrfti ekki að sæta varðhaldi. Á það hafi ekki verið fallist. Eldri bróðir Liams hafi síðan komið heim tuttugu mínútum síðar, en þá hafi faðir hans og bróðir verið horfnir. Marc Proksch, lögmaður fjölskyldunnar, segir að hún sé með virkt mál um hæli í gangi í kerfinu og hefur sýnt gögn um komu feðganna til Bandaríkjanna um lögmæta landamærastöð. „Fjölskyldan gerði allt sem hún átti að gera samkvæmt þeim reglum sem fyrir liggja, sagði Prokosch. „Þau komu ekki hingað ólöglega. Þau eru ekki glæpamenn.“ Þeim hafi ekki verið vísað úr landi en lögmaðurinn segist telja að feðgarnir séu saman í varðhaldi. Skólinn birti tvær myndir af handtökunni, eina af drengnum þar sem hann stendur skelkaður með bláa húfu á höfði og litríka skólatösku á bakinu. Á hinni myndinni sést svartklæddur fulltrúi ICE fylgja drengnum að útidyrahurð heimilisins. Í yfirlýsingu frá heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna segir að um hafi verið að ræða „hnitmiðaða aðgerð“ þar sem markmiðið hafi verið að handtaka föður drengsins sem stjórnvöld segja vera ólöglegan innflytjenda. ICE hafi ekki beint aðgerðum sínum gegn barni. Þá segir fulltrúi ráðuneytisins að faðirinn hafi reynt að hlaupa undan og hafi skilið barn sitt eftir. Því hafi einn fulltrúi ICE beðið með barninu á meðan annar hljóp föðurinn uppi.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira