„Of margir sem reyndu að bjarga leiknum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. janúar 2026 22:12 Skagastrákarnir hans Óskars Þórs Þorsteinssonar hafa tapað sjö leikjum í röð. jón gautur Þrátt fyrir tapið gegn Álftanesi í kvöld, 89-81, var Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA, sáttur með frammistöðu sinna manna í leiknum. „
Ég hafði trú á okkar mönnum í þessum leik og er ánægður með frammistöðu margra í liðinu í dag. Þeir stigu upp og voru sterkir,“ sagði Óskar við Vísi eftir leikinn. ÍA byrjaði leikinn vel en síðan hallaði undan fæti og liðið skoraði ekki körfu í tíu mínútur. Þrátt fyrir það voru Skagamenn bara einu stigi undir í hálfleik, 41-40. „Við stóðum okkur mjög vel í að loka á þeirra aðalmenn. Það var erfitt að greina þá fyrir leik, að vita ekki hvort Justin James yrði með og hvort Nikola [Miscovic] myndi byrja. En ég er almennt mjög sáttur með frammistöðuna og þetta hefði mátt detta aðeins betur fyrir okkur,“ sagði Óskar. ÍA var í ágætri stöðu undir lok leiks en þá tók Álftanes fram úr. „Við töpuðum boltanum, gerðum of mikið af mistökum og hentum þessu frá okkur. Justin setti stóran þrist í lokin og allt það en mér fannst þetta meira vera að við fundum ekki takt í sóknarleiknum og of margir sem reyndu að bjarga leiknum, í staðinn fyrir að spila upp á það sem er opið og halda áfram,“ sagði Óskar. ÍA er áfram á botni deildarinnar en samt er engan bilbug á Óskari að finna. „Við förum yfir spilamennskuna á myndbandi og lærum það sem við getum lært af þessum leik. Auðvitað er þetta sárt núna og verður það fram að næsta leik,“ sagði Óskar. Gojko Zudzum lék ekki með ÍA í kvöld, ekki frekar en í síðustu leikjum. Óskar segir að endurkoma hans nálgist. „Það styttist í hann,“ sagði Óskar en gæti Zudzum spilað næsta leik? „Vonandi. Ég veit það ekki. Við tökum stöðuna á honum í vikunni og þetta er bara dag frá degi,“ svaraði Óskar.
Bónus-deild karla ÍA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira