Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. janúar 2026 11:17 Fjármálaráðgjafinn Björn Berg segir foreldra klára séreignarsparnaðinn til að hjálpa börnunum sínum. Vísir/Vilhelm Fjármálaráðgjafi segir fjárhag barna vera eitt stærsta lífeyrismál foreldranna. Foreldrar eigi það til að seinka því að fara á eftirlaun eða skuldsetja sig til að aðstoða börnin fjárhagslega.
Björn Berg fjármálaráðgjafi fór yfir hvað fólk gerir oftast með peningana sína þegar það fer að nálgast lífeyrisaldur. Hann skiptir því í þrennt, fyrsti hópurinn notar peninginn í eitthvað skemmtilegt, annar hópurinn í að framfleyta sér sjálfum en sá þriðji hjálpar börnunum. „Fólk sem er að detta í lífeyrisaldur lækkar í tekjum, kannski töluvert, og þarf á sínu lausafé að halda fyrir sig sjálft. Að þá sé það að gefa börnunum sínum lausafé eða jafnvel taka lán til þess að aðstoða börn sem eru bara fullorðin. Börn sem að hvort sem það er einhver fjárhagsvandi eða að foreldrarnir séu að upplifa sem svo að þau hefðu gott af smá aðstoð,“ segir Björn sem ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni. „Það er ekkert óheillegt við þetta og ég held að þetta sé ekkert nýtt en það sem mætti skoða aðeins betur er þegar þetta er farið að hafa veruleg áhrif á lífeyrismál. Þetta seinkar því til dæmis að sumir geti farið á eftirlaun.“ Séreignarsparnaðurinn horfinn Björn segir það misjafnt hvað foreldrarnir séu að aðstoða börnin við og tekur sem dæmi íbúðakaup og skilnað. Það sé samt sem áður mikilvægt að hafa verulegt svigrúm þegar fólk fer á eftirlaun og betra að huga að því fyrr heldur en síðar. Hann tekur sem dæmi fólk um sextugt sem er fyrst þá að skipuleggja sín lífeyrismál og eiga börn um þrítugt sem eru að reyna að spara fyrir útborgun í íbúð. Foreldrarnir finna sig knúna til að aðstoða. „Ég sé líka stundum að fólk á kannski tvö, þrjú börn og það er búið að hjálpa einu eða tveimur og svo er yngsta barnið að fara flytja út og þá hugsa þau að þau þurfi að hjálpa því þau hjálpuðu hinum. Þá ertu kominn í klemmu,“ segir hann. „Það er ekki gaman að þetta breyti fyrirætlunum og væntingum fólks til lífeyrisaldursins og að lífeyristaka þurfi að vera með öðrum hætti. Allt í einu er allur séreignarsparnaður bara horfinn og fólk er tæpara eða er að taka með sér skuldir inn í lífið.“ Bómullarvafin börn Björn hvetur foreldra til að byrja snemma að ræða sparnað við börnin sín. Það sé stórt skref að komast inn á íbúðamarkaðinn og að setja börnin í bómul hjálpi ekki. „En það sem gerist, sem ég er nú ekki að alhæfa, það sem ég sé allt of oft er að foreldrar, fjölmiðlar, samfélagsmiðlar og stjórnmálin eru að ala upp heila kynslóð barna með það hugarfar að þau munu ekki eiga breik í eitt eða neitt. Þau munu aldrei kaupa sér íbúð af því að allt er ómögulegt og allt er svindl og allt er ósanngjarnt,“ segir Björn. Foreldrarnir hvetji börnin þá til að búa lengur í foreldrahúsum og börnin geri sér of seint grein fyrir mikilvægi þess að spara. „Þá þarf að byrja að safna einhverjum milljónum. Það er bara allt of seint og þá grípa foreldrarnir inn í með fjárhagslega aðstoð. Það er ekki leiðin.“
Fasteignamarkaður Bítið Bylgjan Lífeyrissjóðir Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Flugvél fór út af brautinni á Hólmsheiði Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira