Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. janúar 2026 21:56 Róbert, Aðalsteinn, Signý og Björg sækjast eftir oddvitasæti Viðreisnar í Reykjavík. Kári Einars Frambjóðendur til oddvitasætis Viðreisnar í Reykjavík gerðu sitt besta til að halda dyrum opnum þegar þau voru spurð í kappræðum flokksins í kvöld hvort þau gætu frekar hugsað sér samstarf með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingunni. Oddvitar mættust í kappræðum í Austurbæjarbíó í kvöld.
Prófkjörið fer fram næsta laugardag 31. janúar og verður um að ræða rafræna kosningu. Hún hefst klukkan 00:01 og lýkur klukkan 18:00. Niðurstöður verða kynntar á Petersen svítunni upp úr klukkan 19:00, að því er segir í tilkynningu. Í framboði eru þau Aðalsteinn Leifsson, Björg Magnúsdóttir, Róbert Ragnarsson og Signý Sigurðardóttir. Flokkurinn situr nú utan meirihluta í borginni. Hann mælist samkvæmt könnun Maskínu sem gerð var í síðasta mánuði með tólf prósenta fylgi. Ljóst er að nýr oddviti mun leiða lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í maí þar sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir hefur þegar tilkynnt að hún sækist ekki eftir endurkjöri. Kappræðunum í Austurbæjarbíó var streymt í beinni í kvöld. Þar var ein aðsend spurning um mögulegt meirihlutasamstarf í borginni í vor og hvort frambjóðendur myndu hringja fyrst í Pétur Marteinsson oddvita Samfylkingarinnar eða Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokkurinn færi svo að viðkomandi væri með ósvarað símtal frá hvoru tveggja að lokum kosningum í maí. Getur hvorki sagt já eða nei Signý Sigurðardóttir viðskiptafræðingur og fyrrverandi forstöðumaður flutningasviðs Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) var fyrst til svara. Hún segist eiga eftir að hlusta á oddvita hinna flokkanna. „Ég get ekkert svarað já eða nei. Það er bara þannig. Ég á eftir að hlusta hvað er á oddinum hjá þessu fólki og það skiptir grundvallarmáli. Við vitum ekki einu sinni hverjir verða í framboði fyrir Miðflokkinn.“ Þetta er ekki bindandi svar? Hvað segir hjartað núna? „Ég veit ekkert. Sorrí. Ég bara get ekki svarað þessari spurningu. Ég á mjög erfitt með að svara þessari spurningu. Það er hreinskilni. Ég get ekki búið eitthvað til.“ Til í að vinna með nýju fólki Róbert Ragnarsson sérfræðingur í stjórnsýslu og fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur sagðist í kappræðunum myndu skoða símann sinn og því næst bjóða oddvitunum til fundar að ræða málin yfir kaffi. Hann ímyndi sér að sá fundur færi fram á Kaffi vest og oddvitarnir myndu sitja þar í horninu. „Fyrir þær breytingar sem ég tel brýnt að fara í gegnum, þá tel ég að það þurfi að vera með nýju fólki og Pétur er vissulega nýr. Það er svarið, þetta er klisja, en nýir vendir sópa best. Það eru svo margar klisjur í stjórnmálum og það er margt til í mörgum þeirra. Legacy inni í ráðhúsinu og starfseminni sem verður erfiðara að breyta með sumu fólki en öðru.“ Verði að vera samrýndur meirihluti Björg Magnúsdóttir fyrrverandi fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður Einars Þorsteinssonar fyrrverandi borgarstjóra benti á það í svörum sínum í kvöld að hún hefði einmitt starfað sem aðstoðarmaður borgarstjóra. „Ég ætlaði að fara inn og hjálpa honum að laga leikskólamálin. Af hverju gekk það ekki upp? Hann hefur talað um það sjálfur. Þegar meirihluti er ósamstíga þá gerist ekkert. Og við þekkjum hvernig slíkir meirihlutar enda, þeir springa. Nú er ég að horfa hér á Þorgerði Katrínu okkar glæsilegu valkyrju sem er að leiða stjórn í þinginu sem er samstíga og við sjáum hvað er að gerast. Það er hægt að gera eitthvað. Það er hægt að hrinda hlutum í verk,“ sagði Björg. „Ég myndi bara segja mér finnst þau bæði æðisleg og ég væri alveg til í að koma með þér á kaffi vest. Bara hvor hópurinn er líklegri til að samþykkja þær breiðu línur í breytingum sem við í Viðreisn ætlum að standa fyrir. Það er ekki hægt að fara inn í meirihluta með fólki sem er okkur ósammála í grundvallar veigamiklum stórum atriðum. Ég veit ég er ekki að svara þér en ég er bara ekki með neitt betra fyrir þig.“ Myndi tala fyrst við Hildi en svo við Pétur „Nú vill svo til að ég kenndi Pétri samningatækni í stjórnunarnáminu í Háskólanum í Reykjavík, þannig ég myndi nú kannski byrja á því að hringja í Pétur og útskýra fyrir honum af hverju ég ætlaði að tala fyrst við Hildi,“ sagði Aðalsteinn Leifsson aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar, varaþingmaður og fyrrverandi ríkissáttasemjari. „En ég myndi vera alveg skýr á því að ég myndi tala við báða aðila til að hafa valmöguleika og vega og meta hvaða leið er skynsamlegast að fara. Ég veit það er klisja en þegar við veljum leiðina þá náttúrulega skoðum við það út frá þeim málefnum sem við viljum ná fram og við skoðum það líka út frá því hvort við erum með samstígan hóp. Vegna þess að það mun alltaf gefa á og þá þarftu að hafa samstígan hóp.“ Hann segist velta fyrir sér hvernig staðan yrði í Sjálfstæðisflokknum og í Samfylkingunni. „Og ég velti fyrir mér hvort við fáum einn Sjálfstæðisflokk eða þrjá núna þegar þeir stilla upp listanum sínum og hvernig hópur það verður til þess að vinna með. Og ég velti því líka fyrir mér hvernig þetta muni teiknast upp hjá Samfylkingunni. En það er alveg ljóst að við hinsvegar munum verða í þessari lykilstöðu. Kannski fæ ég mér bara kaffibolla fyrst og tek því rólega því ég veit að síminn hringir aftur út af því að við munum vinna stórsigur í vor og við munum verða í lykilstöðu til að mynda þennan meirihluta.“
Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Innlent Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Erlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Erlent Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Evran, Icelandair, brottfararstöð og Bubbi á Sprengisandi „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sjá meira