Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2026 10:54 Kim Kardashian eyddi myndunum af Meghan og Harry. Aeon/GC Images Bandaríska athafnakonan Kim Kardashian segist hafa eytt myndum af Meghan Markle og Harry Bretaprinsi á samfélagsmiðlum eftir afmælisveislu móður hennar Kris Jenner í nóvember. Ástæðan er sú að afmælisveisluna bar upp á sama dag og minningardag í Bretlandi um fallna hermenn.
Bandaríski miðillinn People greinir frá þessu en Kim tjáði sig um málið í hlaðvarpi systur sinnar Khloe Kardashian. Kris Jenner hélt upp á stórafmæli sitt í nóvember og var James Bond þema í teitinu sem haldið var heima hjá Jeff Bezos forstjóra Amazon. Til hennar mættu allar helstu stjörnur Los Angeles meðal annars Meghan og Harry sem búa í borginni. Þá deildi Kim myndum af allskonar stjörnum og hertogahjónunum áður en hún eyddi þeim aftur. „Þetta var svo saklaust, sem er svo galið,“ segir Kim. „Mamma og Meghan hafa verið vinkonur í nokkur ár og eiga í mjög góðu sambandi,“ segir athafnakonan sem bætir því við að hún hafi farið yfir það eftir á hvaða myndum þau ættu að deila. „Okkur var sagt að það væri í góðu lagi að birta myndina,“ sagði Kim. View this post on Instagram A post shared by Kris Jenner (@krisjenner) „En eftir að hún var birt held ég að þau hafi áttað sig á að þetta var minningardagurinn og þau vildu ekki láta sjá sig í partíi, þótt myndin væri þegar komin inn, þú veist, og svo tekin út. Og svo held ég að þau hafi áttað sig á því, svona: „Æ, þetta var svo kjánalegt.“ Minningardagurinn hefur mikla þýðingu ár hvert fyrir Breta. Þá minnist þjóðin fallinna hermanna og víðsvegar um landið eru haldnar minningarathafnir. Kim segir hertogahjónin ekki viljað að myndir af þeim að djamma, dansa og hafa gaman yrðu birtar á samfélagsmiðlum þennan dag.
Hollywood Kóngafólk Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Sjá meira