„Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Kári Mímisson skrifar 29. janúar 2026 21:50 Borce Ilievski, þjálfari ÍR, ætlar sér stóra hluti með liðið í vetur. Vísir/Pawel Borce Ilievski, þjálfari ÍR, var að vonum ánægður með sannfærandi sigur sinna manna gegn Ármanni nú í kvöld. ÍR-liðið lék afar vel í dag gegn Ármanni sem hafði unnið tvo leiki í röð fyrir kvöldið í kvöld en lék kanalausir þar sem Brandon Averette er handleggsbrotinn. „
Ég er mjög ánægður með liðið mitt. Við mættum vel inn í þetta verkefni eftir að hafa undirbúið okkur alla vikuna. Til þess að vinna hér í kvöld vissum við að við þyrftum að vera einbeittir frá fyrstu sekúndu til þeirrar síðustu, sem mér þykir að strákunum hafi tekist í kvöld. Lykilatriðið var að fara eftir leikplaninu og okkur tókst að koma Ármenningum á óvart með því að byrja í svæðisvörn. Við náðum forystunni strax á upphafsmínútunni og bættum við hægt og rólega það sem eftir lifði leiks.“ Það hefur farið lítið fyrir Jacob Falko að undanförnu og það virðist eins og hlutverk hans hafi aðeins breyst. Borce segir að hlutverk Falko sé fyrst og síðast að vera umferðarstjórinn í sókninni og það sé að ganga vel þar sem liðið sé að fá framlög frá fleiri leikmönnum núna. Þarf að tryggja að allir séu með í leiknum „Falko er fyrst og fremst leikstjórnandinn okkar og þarf að tryggja að allir séu með í leiknum. Í leik eins og þessum í kvöld er Falko bara leikstjórnandi en þegar við þurfum stig þá er hann auðvitað til staðar fyrir okkur. Ég verð í leiðinni að fá að hrósa Hákoni fyrir hans framlag í kvöld en hann átti frábæran leik sem og Dimitri. Það var mikið undir fyrir okkur í þessum leik og við vissum að þetta yrði erfitt þar sem Ármann hefur leikið afar vel í síðustu leikjum liðsins og náð í tvo stóra sigra. Sjálfstraust er mikilvægt og því miður fyrir þá eru þeir að glíma við meiðsli eins og við sjáum á Brandon sem gat ekki leikið með þeim í kvöld. Það er mikill missir fyrir þá og ég vona að hann nái sér fljótt aftur og hjálpi Ármenningum það sem eftir er af tímabilinu.“ Með sigrinum í kvöld styrkja ÍR-ingar stöðu sína um að ná sæti í úrslitakeppninni þegar sex leikir eru eftir af deildarkeppninni. Borce segist hafa trú á liðinu sínu og virðist núna vera farinn að gæla við að kraftaverk geti gerst. Allir eru að keppa um Íslandsmeistaratitilinn „Allir eru að keppa um Íslandsmeistaratitilinn og við höfum nú þegar sýnt það að kraftaverk geta gerst. Ég hef mjög mikla trú á þessu liði ekki bara eftir þennan sigur heldur aðallega eftir að hafa séð þá á æfingum, hvernig þeir nálgast verkefnin og hversu vel þeir eru samstilltir. Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta. Síðustu tveir leikirnir voru gegn Stjörnunni og Tindastól sem eru með betri liðum í deildinni og við sáum þar að við getum keppt við þau ef við náum að halda einbeitingu eins og við gerðum í kvöld.“
Bónus-deild karla ÍR Ármann Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport Fleiri fréttir Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Sjá meira