Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. febrúar 2026 12:01 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Lýður Valberg Dómsmálaráðherra kynnti í morgun stefnu og aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi hér á landi sem felur meðal annars í sér nýtt samræmt verklag við meðferð brottvísunarmála brotahópa frá EES-ríkjum. Ráðherrann segir að með stefnunni sé brotahópum send skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands.
Stefnan var kynnt á morgunverðarfundi dómsmálaráðherra í morgun þar sem sérfræðingar á vegum ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu ræddu umfang skipulagðrar brotastarfsemi hér á landi og nýtt samræmt verklag til að brottvísa brotahópum frá EES-ríkjunum. Fram hefur komið að tala skipulagðra brotahópa hafi tvöfaldast á tíu árum. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir stefnuna sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. „Það hefur verið kraftmikil aukning á þessari starfsemi í landinu því miður á undanförnum áratug og við erum einfaldlega að stilla saman strengi með lögreglunni í landinu um ákveðnar aðgerðir sem við erum að fara í, ekki síst brottvísanir glæpamanna frá landinu. Með því erum við að sýna að við ætlum að vera sterk í viðbragði, það hefur afleiðingar að brjóta af sér á Íslandi og hópar sem eru eingöngu í þeim tilgangi að koma til landsins til þess að fremja glæpi eru ekki velkomnir og munu sæta brottvísunum.“ Hún segist vongóð um að hin nýja stefna muni skila árangri í baráttunni gegn glæpastarfseminni. „Þetta snýst fyrst og fremst um verklag og við erum með mjög sterkt lögreglulið í landinu. Öll Evrópa horfir á þetta og heimurinn auðvitað allur. Þannig við erum hér með stefnu sem er opinber svo erum við með aðgerðaráætlun sem eðli málsins samkvæmt verður ekki deilt með glæpahópum, aðgerðir sem seytla núna inn í kerfið. Þetta snýst um skýr skilaboð, markvissa stefnu og það að brot hafi afleiðingar. Með því ætlum við okkur að sýna þessum brotahópum fram á það að það borgar sig ekki að leita til Íslands.“ Ráðherra segir samstarf stofnana hér á landi sem og alþjóðlegt samstarf á borð við Schengen lykilatriði í baráttunni, það yrði ekki vænlegt að loka á slíkt samstarf. Hverju svararðu því, þeim sem segja: Af hverju förum við ekki bara úr Schengen, jafnvel EES? „Að fara úr EES myndi lama íslenskt efnahagslíf en varðandi Schengen þá hefði ég mjög miklar áhyggjur af því ef við værum ekki í Schengen hvar við stæðum sem lítil eyja, án allra þeirra upplýsinga sem ferðast lögreglunnar á milli um alla Evrópu. Upplýsingar og greiningar eru forsenda árangurs, þannig ég hefði mjög miklar áhyggjur af því hvað það myndi gera lögreglusamvinnu ef við myndum segja sem svo við ætlum að afþakka þessar upplýsingar, við ætlum að afþakka þetta samstarf.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lögreglumál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira