Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu Kristján Már Unnarsson skrifar 2. febrúar 2026 21:31 Albert Sveinsson er skipstjóri á Víkingi AK. Ívar Fannar Arnarsson Skipstjóri loðnuveiðiskips býst við að loðnuvertíðin verði komin á fullt í kringum næstu helgi. Hann segir sérstaka vertíðarstemningu fylgja loðnunni, - hún kveiki líf allsstaðar.
Í fréttum Sýnar var farið í Sundahöfn í Reykjavík þar sem var verið að gera Víking AK, eitt af þremur uppsjávarskipum Brims, kláran til loðnuveiða. Nótin var sett um borð í gær. Í dag er verið að setja víra og ýmislegt annað um borð í skipið. „Við erum að búa okkur undir loðnuveiði. Langt síðan hún var síðast,“ segir Albert Sveinsson skipstjóri á Víkingi. „Við erum farnir að sakna hennar.“ -Er þá góð stemning um borð? „Já, já, þetta er alltaf rosalega gaman að byrja loðnuvertíð,“ svarar skipstjórinn. Víkingur AK við Skarfabakka í dag.Ívar Fannar Arnarsson Skipið byrjar þó á því að sigla til Akraness því það er með fullfermi af kolmunna í kældum lestunum, 2.450 tonn. „Við förum upp á Skaga í kvöld sennilega. Löndum og verðum svona sólarhring í löndun, sirka. Og svo er bara spurning hvernig lítur út þegar búið er að landa.“ Það er nefnilega eitthvað tvísýnt með veðrið næstu daga. „Loðnan var komin í Berufjarðarálinn þegar við vorum á landleið núna síðast. Þannig að hún ætti að geta verið komin upp að Hornafirði bara núna fljótlega.“ -Fer þá ekki bara meira og minna allur flotinn af stað? „Jú. Það er bara skítaveður með suðurströndinni. Óhagstæð veðurspá. En þetta hlýtur að koma í lok vikunnar. Og svona í næstu viku, þá er allt komið sjálfsagt á fullt.“ Veiðarfærum fyrir loðnuna komið um borð.Ívar Fannar Arnarsson Albert býst þó við að sigla austur í framhaldi af löndun og gera skipið klárt á miðunum. Kannski eru það Vopnfirðingar sem bíða spenntari öðrum af aflafréttum af Víkingi því þangað er ætlunin að skipið fari með fyrsta loðnufarminn til heilfrystingar. -Þannig að þá fer allt á fullt á Vopnafirði? „Já. Við frystum þar. Svo þegar hrognin byrja, þá löndum við á Akranesi,“ segir Albert og segir sérstaka stemningu fylgja loðnunni. „Alltaf sérstök stemning í kringum loðnuna. Það er svona vertíðarstemning sem maður sér - að það kviknar líf alls staðar. Í landi og í sjónum. Það bara kviknar líf alls staðar.“ -Og munuð þið kveikja lífið á Vopnafirði líka? „Já, já, já, það kemur líf þar. Allmargir fá vinnu. Það verður nóg að gera,“ segir Albert skipstjóri í frétt Sýnar sem sjá má hér:
Loðnuveiðar Sjávarútvegur Reykjavík Vopnafjörður Akranes Tengdar fréttir Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. 29. janúar 2026 21:42 Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. 29. janúar 2026 21:42
Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Gleði ríkti á Norðfirði í dag þegar fyrstu loðnunni á þessari vertíð var landað hjá Síldarvinnslunni. Loðnunni er lýst sem stórri og fallegri og fer hún öll í heilfrystingu til manneldis. 20. janúar 2026 21:56