Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Árni Sæberg skrifar 3. febrúar 2026 14:15 Lucky records er til húsa að Rauðarárstíg í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Lucky records ehf., sem rak um árabil samnefnda plötuverslun við Rauðarárstíg, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Verslunin er nú rekin af öðru félagi, Plötur og diskar ehf., sem stofnað var síðasta sumar.
Í auglýsingu sem birt var í Lögbirtingablaðinu í gær segir að bú félagsins hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 28. janúar síðastliðinn. Frestdagur skiptanna sé 24. október síðastliðinn og skiptafundur hafi verið boðaður þann 22. apríl næstkomandi. Skorað er á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur búinu eða eigna í umráðum þess, að lýsa kröfum sínum fyrir skiptastjóra í búinu innan tveggja mánaða frá fyrri birtingu innköllunarinnar í gær. Blaðamaður hringdi í verslun Lucky records og var svarað nánast samstundis og sagt að verslunin væri opin. Ingvar Geirsson, stofnandi Lucky records og eigandi Lucky records ehf., segir í stuttu samtali við Vísi að versluninni hafi ekki verið lokað. Að öðru leyti óskaði hann eftir skriflegum spurningum, þar sem hann sé í fríi í Keníu um þessar mundir. „Staðan er þessi að það hefur annar rekstraraðili tekið við vörumerkinu sem heitir Plötur og diskar og sá rekstraraðili ætlar að halda vörumerki Lucky records enn þá á lífi og viðskiptavinir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að koma að lokuðum dyrum,“ segir hann í svari við fyrirspurn Vísis. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er félagið Plötur og diskar í eigu Ingimars Arnar Gylfasonar og var stofnað síðasta sumar.
Tónlist Verslun Reykjavík Gjaldþrot Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira