Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 08:43 Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, heimsótti Ísland í fyrra þar sem hann fundaði meðal annars með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðinu. Vísir/Vilhelm Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt.
Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, þar sem spurt var um afstöðu þjóðarinnar til aðildar að ESB og NATO. Könnunin var gerð dagana 21. janúar til 2. febrúar. 1.672 voru í úrtaki og var þátttökuhlutfallið 48,8%. Kjósendur Flokks fólksins og flokka utan þings neikvæðastir í garð NATO Spurt var í fyrsta lagi hvort svarendur væru hlynntir eða andvígir veru Íslands í NATO. Líkt og áður segir segjast 78% alfarið, mjög eða frekar hlynntir því að Ísland sé í NATO. Þá segjast 17% vera hvorki hlynntir né andvígir, en innan við einn af hverjum tíu segist alfarið, mjög eða frekar andvígir aðild Íslands að bandalaginu, eða 9%. Svona dreifðust svörin þegar spurt var um NATO en þarna má janframt sjá samanburð á milli ára aftur til ársins 2001.Gallup Í tilkynningu frá Gallup er bent á að hlutfall þeirra sem eru alfarið hlynntir NATO-aðild hefur hækkað um rúmlega sex prósentustig frá því í fyrra. „Mælingin var gerð eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti ítrekað yfir vilja sínum til að Bandaríkin eignuðust Grænland,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Meirihluti svarenda í langflestum þjóðfélagshópum eru hlynntir veru Íslands í NATO, en hvort sem litið er til aldurs, kyns, menntunar, búsetu eða tekna segjast á bilinu 69-88% vera hlynntir veru Íslands í NATO. Jákvæðast gagnvart veru Íslands í NATO er þó fólk á milli fertugs og fimmtugs og íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru heldur hlynntari en íbúar á landsbyggðinni. Mestan mun á milli svara er að finna þegar litið er til stjórnmálaskoðana, en kjósendur Flokks fólksins eða annarra flokka sem eiga ekki sæti á Alþingi eru ekki eins hlynntir veru Íslands í NATO og kjósendur annarra flokka. Karlar andvígari ESB en konur Þá var spurt hvort svarendur væru hlynntir eða andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fram kemur í tilkynningu frá Gallup að landsmenn séu andvígari því núna en í fyrra að Ísland gangi í Evrópusambandið. Frá árinu 2022 hefur þeim farið fjölgandi sem segjast andvígir aðild Íslands að ESB. Sé hins vegar litið aftur til ársins 2010 hefur stuðningurinn heilt yfir farið vaxandi síðan þá.Gallup Næstum nákvæmlega jafnmargir segjast vera hlynntir ESB aðild og þeir sem segjast andvígir, eða 24%. Þeim hefur fjölgað um sex prósentustig á milli ára sem segjast andvígir, og hlutfall þeirra sem segjast hlynntir ESB aðild lækkar um tvö prósentustig, séu niðurstöður bornar saman við sambærilega könnun frá í fyrra. Þá eru fleiri sem taka afstöðu nú en í fyrra þegar 20% sögðust hvorki hlynntir né andvígir, en í ár er það hlutfall komið niður í 16%. „Karlar eru andvígari því en konur að Ísland gangi í Evrópusambandið. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru hlynntari því en íbúar lands[1]byggðarinnar og fólk með meiri menntun en minni er sömuleiðis hlynntara því. Þau sem kysu Viðreisn eða Samfylk[1]inguna ef kosið yrði til Alþingis í dag eru helst hlynnt því að Ísland gangi í ESB en síst þau sem kysu Sjálfstæðis[1]flokkinn,“ segir ennfremur í tilkynningunni frá Gallup.
Evrópusambandið NATO Utanríkismál Skoðanakannanir Öryggis- og varnarmál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira