Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik 4. febrúar 2026 21:54 Omar Marmoush skoraði tvö mörk fyrir Manchester City í kvöld. Vísir/Getty Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik enska deildarbikarsins í fótbolta. Þetta varð ljóst eftir að City valtaði yfir Newcastle United í einvígi liðanna í undanúrslitum samanlagt 5-1. Fyrir leik kvöldsins leiddi Manchester City einvígið með tveimur mörkum í kjölfar 2-0 sigurs á St. James´Park í fyrri leik liðanna. Verkefnið erfitt fyrir gestina frá Newcastle. Það varð svo risavaxið snemma leiks og nær ógerlegt þegar að tvenna frá Omar Marmoush og mark frá Reijnders í kjölfarið sá til þess að Manchester City var komið í stöðuna 5-0 í einvíginu. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiksins þurfti lykilmaður Newcastle, Anthony Gordon, að fara meiddur af velli og virtist um tognun aftan í læri að ræða. Algjör martröð fyrir Newcastle í fyrri hálfleik. Mark frá Anthony Elanga í seinni hálfleik sá til þess að Newcastle minnkaði muninn í stöðuna 5-1 í einvíginu en nær komust gestirnir frá Newcastle ekki. Manchester City leikur til úrslita í enska deildarbikarnum þetta tímabilið og mætir þar Arsenal í algjörum risa leik.
Fyrir leik kvöldsins leiddi Manchester City einvígið með tveimur mörkum í kjölfar 2-0 sigurs á St. James´Park í fyrri leik liðanna. Verkefnið erfitt fyrir gestina frá Newcastle. Það varð svo risavaxið snemma leiks og nær ógerlegt þegar að tvenna frá Omar Marmoush og mark frá Reijnders í kjölfarið sá til þess að Manchester City var komið í stöðuna 5-0 í einvíginu. Skömmu fyrir lok fyrri hálfleiksins þurfti lykilmaður Newcastle, Anthony Gordon, að fara meiddur af velli og virtist um tognun aftan í læri að ræða. Algjör martröð fyrir Newcastle í fyrri hálfleik. Mark frá Anthony Elanga í seinni hálfleik sá til þess að Newcastle minnkaði muninn í stöðuna 5-1 í einvíginu en nær komust gestirnir frá Newcastle ekki. Manchester City leikur til úrslita í enska deildarbikarnum þetta tímabilið og mætir þar Arsenal í algjörum risa leik.
Enski boltinn Manchester City Arsenal FC Newcastle United Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Sjá meira