„Þá er þetta munurinn á liðunum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. febrúar 2026 22:00 Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur. Vísir/Ernir Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, gat leyft sér að brosa eftir að hans konur bókuðu sér sæti í úrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta með öruggum sigri gegn Tindastól í Smáranum í kvöld. Hann gat þó einnig leyft sér að setja út á spilamennsku liðsins í fyrri hálfleik. „
Við vorum bara ömurlegar í fyrri hálfleik. Bara soft og lélegar, en vorum góðar í seinni. Virkilega sterkar í seinni, mættum þeim, vorum ákveðnar, börðumst og þegar bæði liðin gera það þá er þetta munurinn á liðunum,“ sagði Þorleifur í samtali við Vísi eftir leik. Grindavíkurliðið náði í nokkur skipti í kringum tíu stiga forskoti í fyrri hálfleik, en hleypti Stólunum aftur inn í leikinn. Hvað fannst Þorleifi breytast í hléi? „Við hættum að væla og hættum að horfa á hvora aðra. Við tókum ábyrgð á því sem við eigum að gera og gerðum það. Því fór sem fór.“ Þorleifur fékk gott framlag frá sínum helstu leikmönnum í kvöld, en fremst meðal jafningja var líklega Abby Beeman, sem tók yfir leikinn í seinni hálfleik og endaði með 29 stig. „Abby gerir þetta alltaf. Við eigum ekkert að vinna og tapa á því og mér fannst það vera liðsheildin sem kláraði þetta. Þær voru tilbúnar þegar var verið að tvöfalda á Abby og búa til sendingarlínur fyrir hana. Hún er frábær leikmaður og við erum með fleiri frábæra leikmenn varnar- og sóknarlega.“ „Hún gerði bara sitt. Þetta er vinnan hennar og hún er góður leikmaður. Ég bara geri ráð fyrir þessu í hverjum einasta leik.“ Grindvíkingar mæta Keflavík í úrslitum VÍS-bikarsins í Suðurnesjaslag. Fyrir hinn hlutlausa körfuboltaáhugamann er það draumaúrslitaleikur, en Þorleifur er hins vegar ekki jafn hrifinn af því. „Þetta er eina liðið sem við höfum bara verið í þvílíku basli með. Þær keyrðu algjörlega yfir okkur þannig ég þarf virkilega að fara að leggja höfuðið í bleyti og finna út úr því hvernig í ósköpunum við getum unnið þær. En ég býst við hörkuleik og við mætum klárar til að vinna.“ Þrátt fyrir að Þorleifur ætti enn eftir að leggja höfuðið í bleyti hafði hann þó ýmsar hugmyndir um það hvernig væri hægt að vinna þetta Keflavíkurlið. „Við þurfum að hlaupa vel til baka og stoppa hraðaupphlaupin þeirra. Við þurfum að vera sterkar á svellinu. Ekki vera vælandi í hvorri annarri eða í dómurunum. Það er mikið mótlæti í svona leikjum og maður þarf bara að standast það og vera sterkur andlega. Við fyrstu sýn er þetta það sem ég veit að við þurfum að gera,“ sagði Þorleifur að lokum.
VÍS-bikarinn UMF Grindavík Tindastóll Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira