„Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. febrúar 2026 22:27 Israel Martín er þjálfari Tindastóls Vísir/Anton Brink Israel Martin, þjálfari Tindastóls, var nokkuð stoltur af sínu liðið þrátt fyrir stórt tap gegn Grindavík í undanúrslitum VÍS-bikars kvenna í körfubolta í kvöld. „
Mér fannst í 3. leikhluta Grindavík bara setja í annan gír og á þeim tímapunkti voru þær sterkari en við,“ sagði Israel Martin í leikslok. „Við héldum áfram að reyna að keyra að körfunni, en fengum ekki endilega það sem við vildum. Mér finnst við vera með lið sem er gott að keyra á körfuna og í gegnum varnir, en það gekk ekki upp núna og þá fór þessi leikur. En mér fannst við ná að opna leikinn oft vel. Við spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur á móti einu besta liði deildarinnar og ég er mjög ánægður með hvað stelpurnar lögðu mikið á sig. Ég vona bara að við verðum í sömu stöðu á næsta ári.“ Tindastólsliðið lenti í basli strax í upphafi leiks og lenti 11-0 undir. Eftir það var liðið alltaf að elta og Martin segir það mögulega hafa tekið of mikla orku úr sínu liði. „Já, mögulega. Við vorum að spila stærstan hluta leiksins á níu leikmönnum og allar sem komu inn á reyndu sitt allra besta. Auðvitað eru sveiflur í þessum leikjum, en mér fannst við stjórna tempóinu á stórum köflum. Kannski vantaði bara aðeins upp á gæðin.“ „En þetta var góð reynsla fyrir okkur og við tökum margt jákvætt með okkur úr þessum leik.“ En hvað getur liðið lært af þessum leik að mati þjálfarans? „Númer eitt er að heimastelpurnar okkar eru að fá fullt af mínútum. Við erum með margar ungar heimastelpur og einhverjar af þeim eru að spila líklega yfir tuttugu mínútur í svona stórum leik. Það er virkilega gott fyrir okkur og hjálpar okkur í framtíðinni.“ Hann segir að lokum að næstu dagar verði nýttir í slökun og æfingar fyrst að liðið er ekki á leið í úrslitaleik á laugardaginn. „Nú er bara endurheimt á morgun, æfing á föstudag og hvíld á laugardaginn. Svo á sunnudaginn byrjar bara undirbúningur fyrir leikinn á miðvikudaginn á móti Hamar/Þór. Það er virkilega gott lið og þessi mánuður mun líklega segja til um hvar við verðum í töflunni í lok tímabils,“ sagði Martin að lokum.
VÍS-bikarinn Tindastóll UMF Grindavík Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira