Óttast samdrátt og atvinnuleysi sem ekki sé hægt að mæta með vaxtalækkun
Miðað við dekkri verðbólguspá til skamms tíma þá kallar hún „alls ekki“ á vaxtalækkun í bráð, að sögn seðlabankastjóra, sem varar við því að mögulega sé að teiknast upp sú staða að hagkerfið kunni að sigla í samdrátt og aukið atvinnuleysi sem ekki verði hægt að mæta með því að ráðast í lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur ekki fengið neina kynningu á hugmyndum stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingar, meðal annars að gera kröfu um lágmarksafborgun inn á lán, og telur að slíkar aðgerðir ættu fremur að vera á borði fjármálastöðugleikanefndar.
Tengdar fréttir
Vöxtum haldið óbreyttum og spennan í þjóðarbúinu er „horfin“
Þrátt fyrir aukningu í verðbólgu að undanförnu þá er hún talin vera tímabundin og því hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst, að sögn peningastefnunefndar Seðlabankans, sem heldur vöxtum óbreyttum í samræmi við væntingar flestra hagfræðinga. Samkvæmt nýrri spá er spennan í þjóðarbúinu horfin en samt útlit fyrir lítillega meiri hagvöxt í ár en áður var talið.
Hlé á vaxtalækkunarferlinu þar til skýr merki um verðbólguhjöðnun birtast
Mikil aukning verðbólgunnar að undanförnu, einkum vegna hækkunar bifreiðaverðs í kjölfar vörugjaldabreytinga, kallar á hlé á vaxtalækkunarferlinu þar frekari vísbendingar um hjöðnun fara að birtast, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Verðbólgumælingin í janúar setur peningastefnunefnd í óþægilega stöðu en verðhækkanir á fremur breiðum grunni staðfesta sumpart áhyggjur hennar af kostnaðarþrýstingi af völdum mikilla launahækkana.