Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. febrúar 2026 10:40 Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af stöðunni og hugmyndum að lausn. Vísir/Arnar Formaður Læknafélags Íslands segir stöðuna á Landspítalanum aldrei hafa verið verri, sífellt séu ný met slegin í fjölda sem liggi á bráðamótttökunni og einnig hafi nýtt met fallið á dögunum en nú bíði yfir hundrað manns á Landspítalanum eftir hjúkrunarrými. Hún segir nýja hugmynd að lausn með ólíkindum og spyr hvort næsta skref sé að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna?
Þetta kemur fram í aðsendri grein formannsins Steinunnar Þórðardóttur á Vísi. Hún segir ekki hafa tekist að setja lausn vandans í forgang sem alvarleiki hans krefjist og segir að setja þurfi neyðaráætlun í gang sambærilegt því sem gert var í heimsfaraldri COVID-19. Á sama tíma fjölgi eldri einstaklingum sem liggi á spítalanum. Á sama hátt og á bráðamótttökunni hafi talan farið síhækkandi á undanförnum árum þrátt fyrir stöðugar ábendingar og neyðarköll frá spítalanum um að staðan sé ósjálfbær. Hugmyndin að lausn með ólíkindum „Í minnisblaði Landspítalans til heilbrigðisráðuneytisins nú í byrjun árs eru hafðar uppi hugmyndir um að bregðast við vandanum með því að tvímenna tímabundið í herbergjum íbúa hjúkrunarheimila. Þessi hugmynd verður að teljast með ólíkindum. Eigum við að halda áfram að ýta þessum vanda á undan okkur í stað þess að horfast loksins í augu við hann?“ Steinunn segir vandann kominn á óbærilegt stig á bráðamóttöku og legudeildum. Hún spyr hvort þá sé vænlegt að flytja vandann út á hjúkrunarheimilin líka í stað þess að bregðast við og lagfæra stöðuna? „Í þessu samhengi ber að halda því til haga að hjúkrunarheimili eru heimili þeirra sem þar búa og því lítill munur á því að leggja ókunnugt fólk inn á herbergi íbúa hjúkrunarheimila og á herbergi á öðrum heimilum í landinu. Er næsta skref mögulega að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna almennt? Mér sýnist að ég eigi pláss fyrir a.m.k. einn aldraðan einstakling í stofunni hjá mér.“ Steinunn segir að bregðast verði sérstaklega við þrengslunum á Landspítala. Óhugsandi sé að spítalinn geti tekið á sig fjögurra milljarða aðhaldskröfu við þessar aðstæður. Bráðamótttaka beri 36 sjúklinga en ekki hundrað og segir Steinunn starfsemi hennar ekki getað farið fram við óbreyttar aðstæður í fjögur ár í viðbót. Bendir hún á að samkvæmt nýjustu skýrslu OECD komi fram að Ísland sé með helmingi færri sjúkrarúm en að meðaltali séu til boða í Evrópusambandinu. „Það er því ekki nóg að fjölga hjúkrunarrýmum, það þarf að horfa á kerfið í heild, bæði hvað varðar húsnæði og mannafla. Gera þarf áætlanir um innviðauppbyggingu heilbrigðiskerfisins út frá raunverulegri þörf samfélagsins. Hefja þarf endurreisn þess af myndugleik, enda hafa landsmenn ítrekað sett heilbrigðiskerfið í fyrsta sæti þegar kemur að þeim málaflokkum sem við viljum setja í forgang.“
Landspítalinn Eldri borgarar Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira