Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 14:02 Garðyrkjustöðin Reykás er rekin af þeim Oddrúnu Ýr og Þorleifi Þorra. Vísir/Vilhelm Þau eru menntuð og hafa byggt upp umfangsmikinn landbúnaðarrekstur með níu starfsmönnum. Samt teljast Oddrún Ýr Sigurðardóttir og eiginmaður hennar, Þorleifur Þorri Ingvarsson, ekki nýliðar í augum ríkisins. Ástæðan er einföld og ófrávíkjanleg: þau voru bæði komin yfir fertugt þegar þau keyptu garðyrkjustöðina Reykás.
Reglur um nýliðunarstuðning í landbúnaði miða við að umsækjendur séu á aldrinum 18 til 40 ára. Því skipta menntun, reynsla, fjárfesting, rekstrarumfang og raunveruleg nýliðun ekki máli um leið og aldursmarkinu er náð. Oddrún er 49 ára og Þorleifur 44 ára – og þar með sjálfkrafa útilokuð frá því að sækja um stuðning sem ætlaður er til að auðvelda fólki að hefja búskap. Oddrún spyr hvort reglugerð sem útilokar raunverulega nýliða einvörðungu vegna aldurs þjóni í raun markmiðum sínum – eða standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Hafa byggt upp rekstur frá grunni Oddrún og Þorleifur keyptu garðyrkjustöðina Reykás í Brekkuhlíð í Hrunamannahreppi fyrir tæpum tveimur árum. Þar reka þau um fimm þúsund fermetra gróðurhús á fjórum hekturum lands, þar sem ræktaðir eru meðal annars tómatar, gúrkur og salat. Reksturinn er umfangsmikill og níu manns starfa við stöðina auk þeirra hjóna. Oddrún og Þorleifur koma ekki úr bændafjölskyldum heldur keyptu þau fyrirtæki í landbúnaði með tilheyrandi skuldsetningu, áhættu og ábyrgð. „Ég skil alveg í grunninn hvaðan reglurnar koma,“ segir Oddrún. „Þær hafa líklega verið hugsaðar fyrir ungt fólk sem tekur við búi af foreldrum sínum eða nýútskrifaða nemendur úr bændaskólum. En við erum ekki í þeirri stöðu.“ Uppfylla allt – nema aldurinn Bæði uppfylla þau öll fagleg skilyrði sem almennt eru gerð til nýliða. Þorleifur er menntaður garðyrkjufræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Oddrún er búfræðingur, reiðkennari og háskólamenntuð þroskaþjálfi. Hún starfar einnig sem kennari, samhliða því að sjá um bókhald, launamál og alla skrifstofu- og rekstrarþætti fyrirtækisins. „Við uppfylltum öll skilyrði,“ segir hún. „Nema bara aldurstakmarkið.“ Oddrún bendir á að sífellt algengara sé að fólk mennti sig lengur, skipti um starfsvettvang síðar á ævinni og hefji sjálfstæðan rekstur eftir fertugt. Sjálf flutti hún og fjölskylda hennar austur úr Mosfellsbæ fyrir um fimm árum. Þá var Þorleifur í námi í garðyrkjuskólanum, í miðjum heimsfaraldri. Upphaflega stefndu þau ekki á jafn stóran rekstur, en tækifærið gafst og þau ákváðu að slá til. „Þetta er stærra en við ætluðum,“ segir hún. „En við tókum þessa ákvörðun af fullri alvöru.“ Oddrún segir að stuðningsleysi dragi úr hvata til uppbyggingar í landbúnaði.Vísir/Vilhelm Orkufrekur rekstur – og styrkir sem skipta máli Gróðurhúsarekstur krefst stöðugs eftirlits með hita, raka, loftræstingu og lýsingu. Þorleifur er nánast stöðugt á stöðinni og gistir þar jafnvel yfir nótt þegar á þarf að halda. Þau sjálf hlaupa oft í skarðið til að halda yfirvinnu í lágmarki. „Þetta er svaka dæmi,“ segir Oddrún. Hún nefnir að rafmagnskostnaður geti numið allt að níu milljónum króna á mánuði, auk þess sem launakostnaður er einn stærsti útgjaldaliðurinn. „Í svona rekstri skipta jafnvel ein eða tvær milljónir máli,“ segir hún. „Málið snýst ekki endilega um að fá styrkinn. Heldur um réttinn til að sækja um.“ Að hennar mati er það versti gallinn: að vera útilokuð fyrirfram. Þetta er ekki hugsað til enda Oddrún birti nýlega opna færslu á facebook þar sem hún vakti athygli á málinu. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa en yfir hundrað manns hafa deilt færslunni. „Allir sem ég tala við spyrja: ert þú ekki að djóka?“ segir hún. Jafnræðisreglan Það sem sló Oddrúnu þó hvað mest í þessu máli var þegar henni var bent á 65. grein stjórnarskrárinnar, jafnræðisregluna. Þar segir að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og að óheimilt sé að mismuna fólki, meðal annars á grundvelli aldurs. „Þetta er ekki bara stjórnsýslulegt atriði,“ segir hún. „Þetta er grundvallar jafnréttismál.“ Að hennar mati felur aldurstakmarkið í sér óbeina aldursmismunun, þar sem fólk í sambærilegri stöðu fær ólíka meðferð eingöngu eftir fæðingarári, án mats á raunverulegum aðstæðum. Oddrún og Þorleifur sendu ráðuneytinu bréf þar sem óskað var eftir rökstuðningi og svörum, en hafa enn ekki fengið nein viðbrögð. Oddrún segir að reglur um nýliðunarstyrk endurspegli ekki lengur raunveruleika landbúnaðarins.Vísir/Vilhelm „Engin hvatning“ Á sama tíma hefur stuðningur almennings verið mikill. Fólk hefur haft samband, deilt málinu og lýst yfir undrun sinni. Að mati Oddrúnar senda reglurnar skýr skilaboð til þeirra sem vilja hefja búskap síðar á ævinni. „Engin hvatning,“ segir hún. „Bara núll.“ Hún segir Ísland hafa alla burði til að vera sjálfbært í matvælaframleiðslu, sérstaklega í grænmetisrækt. En til þess þurfi kerfið að endurspegla raunveruleikann sem fólk býr við. „Við höldum áfram af því okkur finnst þetta gaman og við trúum á það sem við erum að gera,“ segir Oddrún. „En við viljum fá sama aðgengi og aðrir – og ekki brenna út.“
Landbúnaður Stjórnsýsla Skeiða- og Gnúpverjahreppur Mest lesið Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Innlent Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Innlent Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Innlent Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Innlent Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Innlent Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Innlent Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Innlent Hafi svikið tugi milljóna úr íslenskum banka Innlent Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Innlent Ungmenni á „krossurum“ elt heim með dróna Innlent Fleiri fréttir Kvæðið Lilja og Grettissaga meðal dýrgripa sem Svíar lána til Íslands „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Ekið á tvö börn hvort í sínu sveitarfélaginu í dag Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt Rekstraraðilar á Ártúnshöfða lýsa upplausnarástandi vegna borgaryfirvalda Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi „Það er ekki leiðtogi“ Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Handtóku konu vopnaða hnífi Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Lítið mál að halda jafnvægi á 4.500 króna sófa Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Hátt í 40 prósenta aukning í kosningaþátttöku utan kjörfundar Stjórnsýslan hafi lagt undir sig landið og miðin „Mér finnst það ekki siðferðislega rétt“ Ók gegn rauðu ljósi þegar kona á níræðisaldri lést Keypti bíl fyrir peningana og flúði land með Norrænu Rúmenskur bankaræningi og margir kjósa utan kjörstaðar Flugi seinkað vegna forfalla í áhöfn Vilja sinna löggæslu í Grímsey og Hrísey með drónum Vilja fjölga hólmum í Reykjavíkurtjörn og friðlýsa fjöru við Skerjafjörð og Ægisíðu „Ekki frekar en þegar Dagur var í framboði“ Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Sjö vilja embætti skólameistara FB Stór hópur foreldra taki skólaskyldu ekki alvarlega Rúmeninn náði 160 milljónum króna af Arion banka Sjá meira