Norska konungdæmið Ingibjörg Kristín Jónsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 15:48 Eftir áratuga búsetu í Noregi tel ég mig vera komin nær kjarna norsks samfélags, á sama tíma og ég hef fjarlægst íslenskt. Það er ákveðin tilhneiging til að telja að ég viti allt um Ísland sem er í fjarlægð, en lítið um Noreg þar sem ég bý. Þessi tilhneiging er bæði áberandi í Noregi og á Íslandi. Umræðan undanfarið hefur upp á síðkastið mikið snúist um norsku konungsfjölskylduna og sýnist sitt hverjum. Skv. minni reynslu er almennt álit á Íslandi að konungdæmi sé fussum svei og ekkert jákvætt við það. Í byrjun 20. aldarinnar lauk sænskum yfirráðum í Noregi og í framhaldi af því var þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hér ætti að vera lýðveldi eða konungdæmi. Þjóðin var sammála um að fá konung til samræmis við söguna þar sem hér voru alltaf konungar áður. Farið var til Danmerkur og Carl prins (yngri bróðir Christians X Danakonungs) var fenginn sem konungur Noregs og kom til Oslo i juni 1905 og tók upp konungsnafnið Haakon. Á handlegg hans þegar hann gekk frá borði sat 2 ára Alexander prins sem varð þá Olav krónprins. Haakon var konungur frá 1905 til 1957. Noregur var hlutlaus í fyrstu heimsstyrjöldinni, en var hernumið af Þjóðverjum í þeirri síðari. Konungurinn og krónprinsinn fóru til Englands, en krónprinsessan til Bandaríkjanna með börnin þrjú, yngstan 3 ára gamlan núverandi Harald konung. Haakon konungur talaði aldrei norsku. Á stríðsárunum voru útvarpssendingar frá London þar sem hann talaði dönsku. Kona hans Maud drottning var ensk prinsessa og talaði bara ensku. Hún lést 1938. Þjóðernistilfinning Norðmanna óx og dafnaði á stríðsárunum og margir fylgdust ólöglega með ræðum konungs í útvarpinu. Þegar stríðinu lauk 1945 náðu konungur og krónprins að koma heim fyrir 17. maí (þjóðhátíðardeginum), og gleðin átti sér engin takmörk. Þeir stóðu þá á hallarsvölunum og veifuðu til fólksins og voru tákn hinnar frjálsu norsku þjóðar. Áhrifanna gætir sannarlega ennþá. Stríðsárin og eftirstríðsárin voru erfið og mikil fátækt, en þjóðarstoltið bognaði ekki. Martha krónprinsessa, móðir Haraldar konungs, lést 1954 og varð aldrei drottning. Hún og Ólafur konungur voru systkinabörn. Það voru líka Haakon konungur og Maud drottning. Nú þykir þetta skelfilegt hjá mörgum innflytjendum. Ólafur konungur var sá eini af þeim sem talaði norsku frá upphafi og hann varð „folkekongen“. Hann þótti einstaklega alþýðlegur og til marks um það er að undir olíukreppunni 1973 tók hann sporvagninn upp í Holmenkollen til að ganga á skíðum. 1953 gifti elsta dóttir hans sig, og var fyrst konungborinna í Evrópu til að giftast manni sem ekki var konungborinn. Hún flutti til Brasilíu og bjó þar til dauðadags. Var kannski heppilegt að flytja langt burtu. Systir hennar giftist líka manni af alþýðuættum, og þá var röðin komin að Haraldi núverandi konungi. Hann varð ástfanginn af Sonju Haraldsen sem var alþýðustúlka, en Ólafur konungur samþykkti ekki hjónaband þeirra fyrr en eftir níu ár. Sonja heillaði fljótt norsku þjóðina og hefur verið vinsæl alla tíð. Uþb. 30 árum seinna stóð sonur þeirra Haakon krónprins i sömu sporum. Hann hafði fundið ástina hjá alþýðustúlka, en hún átti sér fortíð sem var erfitt að kyngja fyrir marga. Mér er það minnisstætt hvað var mikið talað um að hún væri einstæð móðir. Þar kom minn íslenski uppruni fram. Mér fannst það ekki skipta nokkru máli, en hennar vafasama fortíð væri kannski annað mál. Þau giftu sig og eignuðust börn, og elsta barn þeirra Ingrid Alexandra er ríkisarfi. Það var búið að breyta reglunum að elsti sonur tæki við, og hún er elsta barn krónprinsins og þarafleiðandi erfir hún ríkið. Mette Marit gekk vel að ná hylli þjóðarinnar og krónprinshjónin hafa verið vinsæl. Hún varð okkar mjög fljótt. Nú er litli, fallegi, ljóshærði drengurinn sem hún átti áður ekki lítill og saklaus lengur. Hver skandallinn hefur rekið annan, og við byrjun réttarhaldanna yfir stjúpbarni konungsfjölskyldunnar reið holskefla af fréttum um tengsl krónprinsessunnar við barnaníðinginn Epstein. Norska Þjóðin hefur staðið á öndinni, en fáir vilja segja skilið við kónginn sinn. Mette Marit er „okkar“, og maður snýr ekki baki við sínum. Einhver umræða hefur verið um að hún geti ekki orðið drottning og krónprinsinn verði að skilja við hana svo hann verði konungur og svo geti Ingrid prinsessa verið drottning. Eins og getur nærri er það langsótt og fjarri lagi. Elsta barn konungshjónanna er Martha Louise. Mikill styr hefur staðið um hana og hver skandallinn rekið annan. Sumarið 2024 giftist hún í annað sinn og eiginmaðurinn er amerískur seiðskratti. Þau stunda mikið kukl og galdra sem fellur ekki vel í kramið hjá norsku þjóðinni. Seiðskrattinn hefur ekki sýnt neinn skilning á norsku samfélagi, hvað þá heldur sinni stöðu sem einn af konungsfjölskyldunni. Haraldur konungur er afskaplega vinsæll. Hann er gamall maður og sannkallaður afi norsku þjóðarinnar. Hann er hlýr og hefur skemmtilega kímnigáfu. Mér er mjög minnisstætt þegar hann ávarpaði minningarsamkomu eftir hryðjuverkin 22. júlí 2011. Hann var hrærður mjög, táraðist og röddin brast. Þá grét ég með konungi. Það er langt í land að konungdæmi verði afnumið í Noregi. Höfundur er dósent við Høgskulen på Vestlandet. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun