Ofbeldi MAST - Opið bréf til atvinnuvegaráðherra Árni Stefán Árnason skrifar 11. febrúar 2026 08:46 Hæstvirti atvinnuvegaráðherra. Fyrir ekki svo alls fyrir löngu sagði samstarfsráðherra þinn í ríkisstjórn að hennar fyrsta verk yrði, kæmist hún til valda, að leggja dýravelferðarsvið MAST niður. Þar gagnrýndi hún réttilega MAST fyrir aðgerðarleysi. Nú hafa mál skipast á annan hátt. Stofnunin er farin að sýna dýraeigendum ofbeldi og valdníðslu. Hún grípur hvert einasta tækifæri til aðgerða langt umfram meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Aukinheldur er stofnunin treg til svara og röksemda sem bendir til þess að dr. Hrönn og undirmenn hennar séu alls ekki starfi sínu vaxin. Þetta er farið að valda mörgum dýraeigendum verulegum miska án þess að þeir hafi vegið að 1. gr. laga um velferð dýra. Stjórn og þekkingarleysi MAST á grundvallaratriðum lögfræði og stjórnsýslu virðist fyrir neðan beltisstað. Stofnunin veitir þung högg án röksemda. Fyrir ekki svo alls fyrir löngu gaf og Ríkisendurskoðandi út skýrslu um starfshætti MAST. Skýrslan er hlaðin þungum ákúrum um starfshætti MAST. Dr. Hrönn Jörundsdóttir forstjóri MAST hefur verið ábyrg fyrir starfsháttum MAST frá árinu 2020. Frá þeim tíma hefur lögbundnu hlutverki MAST við eftirlit með dýravelferð farið verulega aftur í þeim skilningi að vegið er að sumum dýraeigendum með verulegu ofbeldi sem felst í einelti og valdníðslu sem er ekki samboðið stofnun undir þinn stjórn í réttarríki. Ég þekki mjög vel og líklega betur en flestir aðrir til þessara mála eftir að hafa gert úttekt á réttaráhrifum og framkvæmd dýraverndarlaga frá upphafi í ritun meistararitgerðar í lagadeild háskólans í Reykjavík fyrir röskum áratug. Starfsháttum MAST í stjórnsýslulegum skilningi hefur farið verulega aftur og vega þeir ítrekað með heimskulegu skipuriti að aðilum sem MAST sækir að. Þekking og geta lagasviðs MAST er mjög gagnrýniverð og meðferð stjórnsýslumála vegna dýravelferðar vekur undrun. Um það hef ég þegar sent þér rafpóst og rökstuðning. Brýn þörf er á, hæstvirti atvinnuvegaráðherra, að þú farir í saumana á þessari stofnun. Ég ætla ekki að hafa mál mitt lengra. Tilgangur þessara skrifa er að ná athygli þinni um þessa stofnun sem er stjórnlaus. Höfundur er dýraverndarlögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Árnason Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira