Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 08:51 Sakborningar Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson hafa verið sýknaðir af ákæru er lýtur að áformum um hryðjuverk á öðrum dómsstigum. Vísir/Hulda Margrét Hryðjuverkamálið svokallaða verður tekið fyrir í Hæstarétti í dag. Tæpt ár er síðan Landsréttur staðfesti sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir sakborningunum Sindra Snæ Birgissyni og Ísidór Nathansson af ákæru er varðar hryðjuverk, en þeir voru fundnir sekir um vopnalagabrot.
Hæstiréttur samþykkti í maí í fyrra að taka málið fyrir en að mati réttarins hefur málið verulega almenna þýðingu. Sindri Snær og Ísidór Nathansson eru ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka og vopnalagabrot en voru í héraði og í Landsrétti sýknaðir af hryðjuverkahluta ákærunnar líkt og áður segir. Sindri var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Landsrétti fyrir vopnalagabrot og Ísidór í fimmtán mánaða fangelsi, en dómar sem þeir hlutu í héraði voru mildaðir í Landsrétti. Líkt og Vísir greindi frá í janúar mun Hæstiréttur ekki skoða þann hluta málsins er varðar vopnalagabrot. Fram kom í rökstuðningi ríkissaksóknara þegar hann óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar að tvímenningarnir hefðu verið ranglega sýknaðir af hryðjuverkaákærunni og að dómurinn væri því bersýnilega rangur. Taldi hann jafnframt mikilvægt að fá úrlausn hæstaréttar í málinu. Sveinn Andri Sveinsson verjandi Sindra Snæs fær 120 mínútur í málflutningartíma fyrir Hæstarétti en Ásgeir Þór Árnason, nýr verjandi Ísidórs, fær sextíu mínútur. Þá fær ákæruvaldið níutíu mínútur. Ekki er gert ráð fyrir að sakborningarnir sjálfir gefi skýrslu í Hæstarétti í dag en þinghald hefst nú klukkan níu.
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira