Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 15:56 Alma Möller heilbrigðisráðherra vill til að mynda hafa efnaskiptaaðgerð sem hluta af heildstæðu þjónustuferli vegna offitu. Vísir/Vilhelm Heilbrigðisráðherra hefur kynnt drög að þingsályktun um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi. Framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu er meðal annars að algengi offitu meðal barna á Íslandi verði ekki lengur hæst á Norðurlöndunum. Í desember 2025 gaf NORMO út skýrslu þar sem dregin var upp dökk mynd af venjum íbúa á Norðurlöndunum, sem borði illa og hreyfi sig of lítið. Rúmur helmingur fullorðinna er of þungur og eitt af hverjum fjórum börnum. Íslendingar komu verst út úr skýrslunni en sjötíu prósent fullorðinna eru í yfirþyngd. Alma Möller heilbrigðisráðherra brást við skýrslunni og sagðist ætla taka málinu alvarlega. Hún hefur nú kynnt drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi. Framtíðarsýn stjórnvalda í málaflokknum er fjórþætt. Framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu vegna offitu á Íslandi verði eftirfarandi: 1. Efling forvarna með áherslu á að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegrar offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Þá verði unnið gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum. 2. Algengi offitu meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndum. 3. Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, með uppvinnslu, formlegri greiningu og aðgengi að langtímameðferð og endurhæfingu þar sem byggt er á gagnreyndum aðferðum. 4. Fjölbreytt og fagleg meðferðarúræði verði aðgengileg þeim sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda vegna sjúkdómsins. Í drögunum sjálfum er aðgerðaáætlun með 21 aðgerð útlistuð en skipta má henni í þrjá hluta, í fyrsta lagi forvarnir og skimun, í öðru lagi gagnaöflun, rannsóknir og skráningar og að lokum heildræna heilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna. Þegar unnið verði að forvörnum og skimun er meðal aðgerða að vinna gegn fordómum og bjóða upp á aðgengileg fræðslu um áhrifaþætti offitu hjá börnum og ungmennum. Í gagnaöflun, rannsóknum og skráningum felst landskönnun á mataræði barna og unglinga, þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um vöktun á offitu barna og samræmd rafræn skráning meðferðarupplýsinga vegna offitu. Þjónustan sem heilbrigðisráðherra hyggst bjóða upp á er næringarfræðingur í geðþjónustu barna, samræmt verklag á heilsugæslum varðandi meðferð offitu barna og gera efnaskiptaaðgerðir hluta af heildstæðu þjónustuferli vegna offitu. Skýrslan er búin til upp úr tillögu starfshóps um offitu, holdafar, heilsu og líðan og úr vinnu verkefnastjóra og þvegfaglegrar vinnustofu um málefni offitu á Íslandi sem haldin var árið 2025. Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilsa Börn og uppeldi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Í desember 2025 gaf NORMO út skýrslu þar sem dregin var upp dökk mynd af venjum íbúa á Norðurlöndunum, sem borði illa og hreyfi sig of lítið. Rúmur helmingur fullorðinna er of þungur og eitt af hverjum fjórum börnum. Íslendingar komu verst út úr skýrslunni en sjötíu prósent fullorðinna eru í yfirþyngd. Alma Möller heilbrigðisráðherra brást við skýrslunni og sagðist ætla taka málinu alvarlega. Hún hefur nú kynnt drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi. Framtíðarsýn stjórnvalda í málaflokknum er fjórþætt. Framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu vegna offitu á Íslandi verði eftirfarandi: 1. Efling forvarna með áherslu á að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegrar offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Þá verði unnið gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum. 2. Algengi offitu meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndum. 3. Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, með uppvinnslu, formlegri greiningu og aðgengi að langtímameðferð og endurhæfingu þar sem byggt er á gagnreyndum aðferðum. 4. Fjölbreytt og fagleg meðferðarúræði verði aðgengileg þeim sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda vegna sjúkdómsins. Í drögunum sjálfum er aðgerðaáætlun með 21 aðgerð útlistuð en skipta má henni í þrjá hluta, í fyrsta lagi forvarnir og skimun, í öðru lagi gagnaöflun, rannsóknir og skráningar og að lokum heildræna heilbrigðisþjónustu fyrir börn og fullorðna. Þegar unnið verði að forvörnum og skimun er meðal aðgerða að vinna gegn fordómum og bjóða upp á aðgengileg fræðslu um áhrifaþætti offitu hjá börnum og ungmennum. Í gagnaöflun, rannsóknum og skráningum felst landskönnun á mataræði barna og unglinga, þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um vöktun á offitu barna og samræmd rafræn skráning meðferðarupplýsinga vegna offitu. Þjónustan sem heilbrigðisráðherra hyggst bjóða upp á er næringarfræðingur í geðþjónustu barna, samræmt verklag á heilsugæslum varðandi meðferð offitu barna og gera efnaskiptaaðgerðir hluta af heildstæðu þjónustuferli vegna offitu. Skýrslan er búin til upp úr tillögu starfshóps um offitu, holdafar, heilsu og líðan og úr vinnu verkefnastjóra og þvegfaglegrar vinnustofu um málefni offitu á Íslandi sem haldin var árið 2025.
Framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu vegna offitu á Íslandi verði eftirfarandi: 1. Efling forvarna með áherslu á að draga úr nýgengi offitu og koma í veg fyrir þróun alvarlegrar offitu, sérstaklega meðal ungra einstaklinga. Þá verði unnið gegn neikvæðum viðhorfum og fordómum. 2. Algengi offitu meðal barna verði ekki lengur hæst á Norðurlöndum. 3. Offita verði meðhöndluð líkt og aðrir langvinnir sjúkdómar, með uppvinnslu, formlegri greiningu og aðgengi að langtímameðferð og endurhæfingu þar sem byggt er á gagnreyndum aðferðum. 4. Fjölbreytt og fagleg meðferðarúræði verði aðgengileg þeim sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda vegna sjúkdómsins.
Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilsa Börn og uppeldi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira