Rómantískt reikningakvöld á Valentínusardegi Þóra Valný Yngvadóttir skrifar 13. febrúar 2026 09:01 Um þessar mundir er Valentínusardagur, dagur rómantíkur og ástar sem kenndur er við heilagan Valentínus, kristinn píslarvott sem sagður er hafa á þriðju öld eftir Krist greitt fyrir með lífi sínu að hafa gefið ástfangin pör saman. Enn í dag lifir minning heilags Valentínusar í öllum blómunum, kortunum og smágjöfunum sem fólk sendir sínum heittelskuðu sem vott um væntumþykju og virðingu. Betra en rósavöndur En kannski er besta gjöfin ekki rósavöndur heldur heiðarlegt samtal um fjárhagslega ábyrgð. Það er nefnilega erfitt að viðhalda rómantíkinni ef óskipulag er á fjármálunum. Peningaáhyggjur eru ein algengasta orsök ágreinings í parasamböndum. Fjárhagslegur óviðráðanleiki og ólík viðhorf til eyðslu getur svo sannarlega grafið undan samstöðu og trausti í annars ágætu sambandi. Til að hlúa að rómantíkinni má ekki gleyma að hlúa að fjármálunum. Rómantískt reikningakvöld Í stað þess að leyfa fjármálunum að vera dulinn skað- og spennuvaldur í sambandinu má breyta þeim í opinskátt samvinnuverkefni. Mánaðarlegt stefnumót yfir reikningunum þarf ekki að vera þurrt og leiðinlegt. Kveikið á kertum, veljið tónlist við hæfi, hellið upp á gott te eða sækið annan uppáhalds drykk og farið saman yfir stöðu mála. Hvernig lítur mánuðurinn út, hvað gekk vel og hverju má breyta og hvað má bæta? Hvað er framundan? Eru markmiðin enn þau sömu og einu sinni var lagt upp með? Stundin snýst ekki um að lauma inn skömm hjá þeim sem þú deilir fjármálum með heldur að efla heiðarleika ykkar og samstöðu. Par sem setur sér sameiginleg fjárhagsleg markmið - hvort sem það er ferðalag, fasteignakaup, aukinn sparnaður eða meiri sveigjanleiki í daglegu lífi – styrkir liðsheildina í sambandinu: Við erum saman í liði og stefnum að sameiginlegu markmiði. Fjárhagsleg heilsa er hluti af vellíðan Nýlegar rannsóknir á velferð einstaklinga sýna að fjármál lita í síauknum mæli upplifun okkar á lífsgæðum og öryggi í tilverunni. Hugtakið fjárhagsleg heilsa merkir að fjármálin styðji við markmið okkar í lífinu og að okkur lífið vel með fjármálin okkar. Fjárhagsleg meðvitund merkir að við þekkjum nákvæmlega stöðuna í fjármálunum: Hvað kemur inn? Hvað fer út? Í hvað viljum við raunverulega nota peningana okkar? Viðhorf okkar til peninga skiptir hér sköpum. Ef við lítum á sparnað sem hömlur upplifum við hann sem fórn. Ef við lítum aftur á móti á sparnað sem frelsi – möguleika til að velja – gjörbreytist samtalið á rómantíska reikningakvöldinu okkar. Það er hægt að læra að byggja upp heilbrigt hugarfar og viðhorf til fjármála. Með einföldum aðferðum og markvissum sparnaði skapast betra svigrúm í peningamálum. Sparnaður er ekki bara upphæð í banka heldur heilsuefling þar sem honum fylgir ró í taugakerfi og maga. Ástin þarf öryggi. Á sama hátt og við hugum að líkamlegri og andlegri heilsu alla daga þurfum við að fylgjast reglulega með fjárhagslegri heilsu okkar. Með því að taka stöðuna í sameiningu í hverjum mánuði gefst tækifæri til að rétta kúrsinn þegar aðstæður breytast – ný vinna, barneignir, veikindi eða einfaldlega áherslubreytingar í lífinu. Rómantík snýst ekki bara um ástarjátningar og átján rauðar rósir. Hún snýst um að standa saman vörð um veruleikann. Kannski er fallegasta Valentínusargjöfin ekki sú sem kostar mest heldur sú ákvörðun að setjast niður saman, hjálpast að við tölurnar og segja: ,,Við ætlum að byggja okkur líf saman – og líka fjárhaginn“. Það er ást í verki. Höfundur er fjármálaráðgjafi hjá Val og virði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Valentínusardagurinn Ástin og lífið Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar