Innlent

Logar í yfir­gefnum bú­stað við Elliða­vatn

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning um eldinn barst slökkviliði klukkan rúmlega korter yfir sjö í morgun.
Tilkynning um eldinn barst slökkviliði klukkan rúmlega korter yfir sjö í morgun. Aðsend

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í yfirgefnum bústað við Elliðavatn í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði er bústaðurinn við Elliðahvammsveg, fyrir neðan Þingin í Kópavogi – og var hann alelda þegar slökkvilið bar að garði.

Um sé að ræða gamlan bústað og vinnur slökkvilið að því að tryggja að eldur fari ekki nálægan gróður.

Tilkynning barst slökkviliði klukkan rúmlega korter yfir sjö í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×