Slökkvilið

Fréttamynd

Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóður­blöndunni

Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

„Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægi­legt“

Einn liggur þungt haldinn á spítala eftir að sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum upp úr klukkan sjö í morgun. Sjónarvottur segir að sér sé illa brugðið eftir atvikið. Ringulreiðin og öskrin sem fylgdu hafi verið verulega óþægileg. 

Innlent
Fréttamynd

Húsið hannað til að gefa eftir í sprengingu

Sá hluti húsnæðis Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík sem stórt gat myndaðist á í sprengingu í morgun er hannaður til þess að gefa eftir í sprengingu. Tveir þeirra sem slösuðust voru í þeim hluta byggingarinnar. Annar þeirra er alvarlega slasaður. Sá þriðji var fyrir utan húsið þegar viðbragðsaðila bar að garði og gekk sjálfur inn í sjúkrabíl.

Innlent
Fréttamynd

Hugsi yfir fréttum af bruna­vörnum á Stuðlum

Slökkviliðsstjóri segist hugsi yfir fréttum af því að ekki hafi verið brugðist við ítrekuðum kröfum um bættar brunavarnir í aðdraganda bruna á Stuðlum árið 2024 þar sem einn lést. Ljóst sé að eigandi hússins beri ábyrgð á brunavörnum samkvæmt lögum, til greina komi að forgangsraða brunavarnareftirliti með opinberum byggingum. Stjórnendur og starfsfólk Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna segjast í yfirlýsingu harma það atvikið og að þegar hafi verið brugðist ábendingum. 

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði í kaffibrennsluofni

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að höfuðstöðvum Tes og kaffis í Hafnarfirði á ellefta tímanum, þar sem eldur hafði kviknað í kaffibrennsluofni. Eldinum var leyft að brenna út og slökkvilið þurfti aðeins að reykræsta.

Innlent
Fréttamynd

Rúta skíð­logar í Hafnar­firði

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins berst nú við eld í rútu sem kviknaði í í Hellnahverfi í Hafnarfirði upp úr klukkan 15. Rútan var á flutningavagni og því mannlaus.

Innlent
Fréttamynd

Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á öðrum tímanum í dag vegna elds sem kom upp í iðnaðarhúsnæði að Brekkutröð í Hafnarfirði. Eldurinn var slökktur rétt eftir klukkan fimm.

Innlent
Fréttamynd

Krafa að fá slökkvi­stöð í bæinn

Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030.

Innlent
Fréttamynd

Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa

Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugstjóri hjá Heliair, vill að keyptar séu skjólur og samið við þyrlufyrirtæki til að bregðast við þegar upp koma gróðureldar. Minni skjólur á minni þyrlum séu töluvert afkastameiri en stór skjóla á stórum þyrlum Landhelgisgæslunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Erfitt að segja til um upp­tök gróðureldanna

Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda.

Innlent
Fréttamynd

Sinueldur við Elliða­vatn

Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið.

Innlent
Fréttamynd

Reykur sást á flug­vallar­svæðinu

Minni háttar sinueldur kviknaði á Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum og sást reykur stíga upp frá flugvallarsvæðinu. Búið er að slökkva eldinn en minnst fjórir sinueldar hafa komið upp á höfuðborgarsvæðinu á innan við sólarhring.

Innlent
Fréttamynd

Tölu­verður við­búnaður vegna til­kynningar um kajak

Lögregla, björgunarsveit og slökkvilið var kallað út þegar tilkynning barst um kajak á hvolfi við Skildinganes í Reykjavík rétt eftir klukkan tíu. Eftir leit með dróna var aðgerðum hætt þegar viðbragðsaðilar höfðu leitað af sér allan grun. 

Innlent
Fréttamynd

Þrír sinu­eldar á innan við sólar­hring

Tveir sinueldar komu upp á höfuðborgarsvæðinu á öðrum tímanum í nótt en greiðlega gekk að slökkva eldana. Annar þeirra kviknaði í Norðlingaholti í Reykjavík og náði yfir um fimm hundruð metra langt svæði. Tveir dælubílar voru sendir á staðinn sem slökktu eldinn frá sitt hvorum enda.

Innlent
Fréttamynd

Sinueldur barst í heyrúllur í Hval­firði

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur að því að ráða niðurlögum sinuelds á landi Mela á Kjalarnesi. Eldurinn barst í heyrúllur en engin hætta er talin steðja að mannvirkjum.

Innlent
Fréttamynd

Átta konur eru í slökkvi­liðum í Ár­nes­sýslu

Um 165 slökkviliðsmenn starfa hjá Brunavörnum Árnessýslu á sjö slökkviliðsstöðvum en nánast allir í hlutastörfum. Átta konur eru í liðinu. Slökkvilið kemur nánast að öllum aðgerðum í sýslunni og oftast þegar sérsveitin er kölluð til.

Innlent
Fréttamynd

Kemst ég örugg­lega út?

Í kjölfar brunans mannskæða í Sviss á gamlárskvöld varð mikil umræða um brunavarnir og öryggi gesta á veitinga- og skemmtistöðum.

Skoðun