Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 17:34 Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í loftgæðamálum hjá Umhverfisstofnun, segir að fólk þurfi almennt ekki að hafa áhyggjur af asbestmengun. Bylgjan/Vísir/Viktor Freyr Sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun segir íbúa í grennd við Toppstöðina í Elliðaárdal ekki þurfa að óttast asbestmengun þrátt fyrir að asbest sé í húsinu. Heljarinnar tiltekt sé fram undan.
Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal í gærkvöldi og var allt viðbragð slökkviliðsins kallað út. Mikill reykur kom frá byggingunni en asbest er í húsinu. „Þetta var ekkert lífshættulegt ástand. Þetta var mikil loftmengun og af myndum að dæma sem ég sá úr Fossvogshverfinu var þetta eins og slæmt gamlárskvöld,“ segir Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun, sem ræddi málið í Reykjavík síðdegis. „Það sem var kannski hættulegast var að þetta var stór bruni í iðnaðarhúsnæði og í iðnaðarhúsnæði eru oft alls konar hlutir að brenna. Þetta var mjög svartur reykur um tíma.“ Asbest brenni þó ekki heldur sé það steintegund sem var mikið notuð sem brunavörn og veggjaklæðningar á árunum 1960 til 1980. Þá var einnig algengt að byggja milliveggi úr asbesti. Þorsteinn telur að þeir sem hafi komið verst út úr asbestmengun séu þeir sem störfuðu við að setja slíkt upp og voru í mikilli návist við efnið. „Það fuðrar ekki upp og það er ekkert víst að það hafi verið nein asbestmengun í gær en reykurinn var samt nógu slæmur.“ Flókið að þrífa Þorsteinn segist ekki vita hvort einhvers konar asbesttrefjar hafi komist í loftið en jafnvel þótt að kvikni í þýði það ekki sjálfkrafa að asbest fari út í loftið. „Þegar þú ert með svona stóran og mikinn eld inni í húsi þá ferðu kannski að horfa á burðarvirki hússins og ef einhver hluti af burðarvirkinu er að hrynja. Það hrynur kannski ein hæðin niður og þá brotna asbestplöturnar og þá ertu kominn með mikið asbestryk,“ segir hann. Töluvert af húsum á Íslandi eru enn með asbesti í en eigendur húsnæðanna ættu ekki að þurfa hafa áhyggjur. Hins vegar ef ráðist er í framkvæmdir, jafn litlar og að hengja mynd upp á vegg, komi asbestryk og það sé hættulegt. Til að fjarlægja slíkt þurfa iðnaðarmenn sérstakt leyfi og er nauðsynlegt að fylgja ströngum kröfum. Heljarinnar vinna er fram undan í Toppstöðinni. „Þetta verður svolítið flókinn vettvangur til að hreinsa upp asbestið,“ segir Þorsteinn. „Ég held að það sé alveg óhætt og sem sagt fyrst og fremst er hættan fyrir þá starfsmenn sem eru að hreinsa rýmið og fjarlægja asbestið.“
Reykjavík síðdegis Bylgjan Reykjavík Slökkvilið Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira