Eldur í Elliðaárdal Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 14. september 2026 18:34 Eldur kviknaði í Toppstöðinni. Vísir/Anton Brink Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík á sjöunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna eldsins. Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins staðfesti þetta í samtali við Vísi. Búið er að slökkva eldinn. Tilkynningin barst rétt fyrir klukkan hálf sjö í kvöld. Töluverður reykur barst frá húsinu og sást hann langar leiðir. Asbest var í húsinu og var íbúum í nágrenninu leiðbeint að loka öllum gluggum vegna mengunarinnar. Þrátt fyrir það fór fram leikur Víkings og Keflavíkur á Víkingsvellinum sem er nærri eldsupptökunum. Reykurinn sást vel af vellinum líkt og sjá má á þessu myndskeiði. Fréttastofa náði tali af Gunnari Guðmundssyni lungnalækni sem taldi reykinn ekki lífshættulegan. Mikill fjöldi viðbragðsaðila var á vettvangi og tókst að slökkva eldinn á um klukkustund. Við tók reykræsting og samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra slökkviliðsins lýkur henni í kvöld. „Það tekur svolítinn tíma að reykræsta svona stórt hús,“ sagði Lárus Steindór Björnsson varðstjóri. Ekki liggur fyrir hversu miklar skemmdir urðu á húsnæðinu sem var áður í eigu Reykjavíkurborgar. Húsið var byggt árið 1946 sem olíu- og kolakynnt varaaflsstöð með Marshall-aðstoðinni. Notkun hússins lagðist af að mestu leyti eftir 1980. Húsið var selt í febrúar á þessu ári og til stóð að hýsa þar jaðaríþróttagreinar og aðra starfsemi sem stutt gæti við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Áætlaður byggingartími var þá þrjú ár. Fylgst var með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins staðfesti þetta í samtali við Vísi. Búið er að slökkva eldinn. Tilkynningin barst rétt fyrir klukkan hálf sjö í kvöld. Töluverður reykur barst frá húsinu og sást hann langar leiðir. Asbest var í húsinu og var íbúum í nágrenninu leiðbeint að loka öllum gluggum vegna mengunarinnar. Þrátt fyrir það fór fram leikur Víkings og Keflavíkur á Víkingsvellinum sem er nærri eldsupptökunum. Reykurinn sást vel af vellinum líkt og sjá má á þessu myndskeiði. Fréttastofa náði tali af Gunnari Guðmundssyni lungnalækni sem taldi reykinn ekki lífshættulegan. Mikill fjöldi viðbragðsaðila var á vettvangi og tókst að slökkva eldinn á um klukkustund. Við tók reykræsting og samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra slökkviliðsins lýkur henni í kvöld. „Það tekur svolítinn tíma að reykræsta svona stórt hús,“ sagði Lárus Steindór Björnsson varðstjóri. Ekki liggur fyrir hversu miklar skemmdir urðu á húsnæðinu sem var áður í eigu Reykjavíkurborgar. Húsið var byggt árið 1946 sem olíu- og kolakynnt varaaflsstöð með Marshall-aðstoðinni. Notkun hússins lagðist af að mestu leyti eftir 1980. Húsið var selt í febrúar á þessu ári og til stóð að hýsa þar jaðaríþróttagreinar og aðra starfsemi sem stutt gæti við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal. Áætlaður byggingartími var þá þrjú ár. Fylgst var með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Slökkvilið Reykjavík Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira