Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 18:43 Heilbrigðisyfirvöld höfðu samband við Klíníkina í dag til að athuga hvort möguleiki sé á að læknamiðstöðin geti tekið við sjúklingum frá Landspítala. Kristján Jón Jónatansson framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar og Alma Möller heilbrigðisráðherra. Vísir Heilbrigðisráðuneytið, Landspítali og einkarekna læknamiðstöðin Klíníkin eiga í viðræðum um hvort sú síðastnefnda geti tekið við sjúklingum frá Landspítala vegna neyðarástands sem þar ríkir. Framkvæmdastjóri Klíníkurinnar segir að nú þegar séu yfir tuttugu rúm laus. Heilbrigðisráðherra segir að aldrei hafi verið brugðist eins hratt við stöðunni.
Starfsfólk bráðamóttöku Landspítalans lýsti hamfaraástandi á deildinni í vikunni og krafðist inngrips stjórnvalda. Þar lægju margfalt fleiri en deildin réði í raun við. Heilbrigðisráðherra sagði við það tækifæri að til stæði að opna um sautján hjúkrunarrými á næstu dögum og boðaði líka miklar breytingar næstu mánuði. Starfsfólk lýsti þá yfir vonbrigðum með svörin, aðgerðirnar nú þurfi að vera meiri og hraðari. Til dæmis hafa aldrei fleiri beðið á spítalanum eftir hjúkrunarrýmum eða 120 manns. Alma Möller heilbrigðisráðherra kveðst hafa brugðist við. „Það er verið að bregðast við með mjög víðtækum hætti. Það hefur aldrei verið unnið að þessum málum af jafn miklum krafti þrátt fyrir að vandinn eigi sér margra ára sögu,“ segir Alma. Aðspurð um hvort að sautján ný hjúkrunarrými hafi nú þegar verið opnuð til að bregðast við stöðunni líkt og hún boðaði í vikunni svarar Alma: „Já, þau eru tilbúin eða verða það á allra næstu dögum.“ Allar klær úti Mun fleira sé í bígerð. „Þá er auðvitað líka verið að skoða húsnæði annars staðar. Þannig að það eru allar klær úti,“ segir Alma. Aðspurð eftir ríkisstjórnarfund í morgun um hvort komi til greina að semja við einkareknar heilbrigðisstofnanir til að bregðast við vandanum svaraði Alma: „Það kemur til greina.“ Viðræður við Klíníkina Það var svo strax eftir ríkisstjórnarfund í morgun sem heilbrigðisráðuneytið og Landspítalinn höfðu samband við einkareknu læknamiðstöðina Klíníkina til að athuga með legurými að sögn Kristjáns Jóns Jónatanssonar framkvæmdastjórans þar. „Heilbrigðisráðuneytið og Landspítalinn höfðu samband í dag. Það var fyrst og fremst rætt um hvort við gætum útvegað legurými. Við eigum laus legurými í Ármúlanum en svo erum við líka með skurðstofur þannig að það er möguleiki á því líka. Það verður samtal um málið helgina og vonandi niðurstaða strax upp úr helgi,“ segir Kristján og bætir við að Klíníkin vilji hafa inni í slíkum samningi að skurðstofur stofnunarinnar verði líka nýttar af Landspítalanum. Ekkert mál að fá starfsfólk Nú þegar er heil legudeild með rými fyrir tólf rúm laus hjá Klíníkinni að sögn Kristjáns en hægt sé að taka á móti allt að 20 sjúklingum, Hann segir að á þessum tímapunkti sé ekki hægt að gefa upp kostnað vegna slíkra samninga. Nú sé verið að skoða alla anga málsins. Hann telur að auðvelt yrði að ná í starfsfólk ef samningar nást. „Við gætum útvegað starfsfólk. Við finnum að fólk vill vinna hér. Það eru margir sem hafa sótt um vinnu hér,“ segir hann. Aðspurður um hvort starfsfólk verði jafnvel sótt frá Landspítala svara Kristján: „Já, já og erlendis frá,“ segir hann.
Landspítalinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðismál Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sjá meira