Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Elín Margrét Böðvarsdóttir og Eiður Þór Árnason skrifa 18. febrúar 2026 20:23 Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, og Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins. Sýn Ekki er útlit fyrir að frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu verði afgreitt úr þingnefnd fyrr en í fyrsta lagi í byrjun mars. Hart hefur verið tekist á um málið þrátt fyrir að það snúi í meginatriðum um að breyta einu orði. Stjórnarandstaðan segir fjölga í hópi gagnrýnenda.
Deilt hefur verið um það hvaða áhrif lagabreytingin muni hafa á ríkisreksturinn. Útlit var fyrir að þingmálið yrði afgreitt úr velferðarnefnd þingsins í morgun en svo fór ekki. „Það komu drög að nýju nefndaráliti frekar seint í gær og það sem við gerðum þá er að svara ákalli um að skýra nánar þennan misskilning, sem okkur fannst og ég held að allir séu sammála um, um tvöfaldan lás og setja skýringuna þá inn í ákvæðið sjálft frekar en að hafa það með greinargerð,“ sagði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, formaður velferðarnefndarinnar og þingmaður Flokks fólksins, í kvöldfréttum Sýnar. „Þar sem þetta kom frekar seint í gær þá tókum við þá ákvörðun í meirihlutanum í morgun að gefa þessu aðeins lengri tíma til þess að það væri hægt svona aðeins að skoða þetta álit betur og það sem þar stendur. Að öðru leyti eru ekki neinar aðrar breytingar í þessu.“ Deilt hefur verið um það hvort frumvarpið feli í sér svokallaðan tvöfaldan lás. Þar er vísað til þess að bætur almannatrygginga muni bæði taka mið af launaþróun og aldrei hækka minna en verðlag. Hafa gagnrýnendur varað við því að þetta geri það að verkum að kjör bótaþega hækki í öllum tilfellum, einnig þegar kaupmáttur launþega rýrni í mikilli verðbólgu. Forsætisráðherra og aðrir stjórnarliðar hafa á sama tíma hafnað því að breytingin feli í sér þennan tvöfaldan lás. Vilja fá fleiri gesti Rósa Guðbjartsdóttir sem situr í velferðarnefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn fagnar því að málið hafi ekki verið afgreitt úr nefndinni í morgun eins og til stóð. „Við höfum lagt mikla áherslu á það hér að undanförnu að fá aftur umsagnir og álit þeirra sem hafa bæst í hóp, ekki síst þeirra sem eru að gagnrýna frumvarpið núna bara frá því það var síðast í meðförum velferðarnefndar, samanber hagfræðingana Axel Hall og Gylfa Zoëga og Seðlabanka Íslands, sem allir bætast í hóp þeirra sem vara við áhrifum þessa frumvarps á ríkisfjármálin. Við væntum þess að þessir aðilar og fleiri til fái að koma til velferðarnefndar núna á næsta fundi vonandi og fara yfir það hver er að misskilja hvern.“ Rósa kallar til að mynda eftir umsögnum um áðurnefnda breytingartillögu meirihlutans. „Félagsmálaráðherra hefur látið að því liggja að það séu allir að misskilja frumvarpið. Við skulum fá úr því skorið hvort að þetta breyti öllu og menn séu þá að skilja þetta rétt.“ Gagnrýnendur tjáð sig í fjölmiðlum Kolbrún segir að farið hafi verið yfir beiðnir minnihlutans um frekari gögn og gestakomur í morgun og greitt um þær atkvæði. Orðið verði við því að veita minnihlutanum þær upplýsingar sem hann eigi rétt á að fá frá stjórnvöldum. „Síðan er spurning með gestakomur, eins og Rósa segir þá er fólk líka búið að vera að tjá sig mikið í fjölmiðlum, eins og þessir tveir ágætu menn sem hér eru nefndir. En síðan erum við bara að skoða hvort það verður nauðsynlegt að kalla inn einhverjar frekari gestakomur. Við erum auðvitað búin að fjalla gríðarlega mikið um þetta mál, fá marga gesti og umsagnir, sumar jákvæðar, aðrar neikvæðar.“ Kolbrún bætir við að fulltrúar meiri- og minnihluta hafi átt mjög góða samvinnu í nefndinni að hennar mati. Gott fyrir stjórnarmeirihlutann Rósa segir að það hafi bæst í hóp þeirra sem gagnrýni frumvarpið mjög harðlega. „Það er breiðfylking í samfélaginu sem er að gagnrýna þetta og það er líka held ég bara gott fyrir stjórnarmeirihlutann. Því upp á síðkastið, bara á allra síðustu dögum, þá er að koma fram misjöfn túlkun úr röðum þeirra um hvað þetta þýðir.“ Ljóst er að málinu er ekki lokið og verður það væntanlega aftur á dagskrá þingsins eftir kjördæmavikuna sem fram fer í næstu viku en þá er gert hlé á störfum Alþingis til að gefa þingmönnum kost á að sækja kjördæmi sín.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira