Innherji

Er­lendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Ocu­lis

Hörður Ægisson skrifar
Líftæknifélagið Oculis, sem á rætur sínar að rekja til Íslands, er skráð á markaði bæði hér heima og í Bandaríkjunum. Samtímis því að gengi bréfa Oculis hefur rokið upp undanfarnar vikur hefur markaðsvirði félagsins nýlega brotið tvö hundruð milljarða króna múrinn.
Líftæknifélagið Oculis, sem á rætur sínar að rekja til Íslands, er skráð á markaði bæði hér heima og í Bandaríkjunum. Samtímis því að gengi bréfa Oculis hefur rokið upp undanfarnar vikur hefur markaðsvirði félagsins nýlega brotið tvö hundruð milljarða króna múrinn.

Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.


Tengdar fréttir

Gengi bréfa Ocu­lis rýkur upp eftir að grein­endur hækka verðmat sitt á félaginu

Eftir jákvæða endurgjöf frá FDA við einu af þróunarlyfi sínu við bráðri sjóntugabólgu, sem skapar forsendur til að hefja skráningarrannsóknir, hafa bandarískir greinendur hækkað verðmat sitt á Oculis en árlegar tekjur af lyfinu eru sagðar geta numið þremur milljörðum dala. Fjárfestar hafa brugðist vel við tíðindunum og gengi bréfa félagsins hækkað skarpt.

Hækka verðmatið um ríflega tvöfalt og telja van­metin tækifæri í lyfja­pípu Ocu­lis

Eftir viðræður við lækna og aðra sérfræðinga um þær niðurstöður sem Oculis kynnti fyrr á árinu úr klínískum rannsóknum á OCS-05, lyf sem gæti veitt taugaverndandi meðferð við sjaldgæfum augnsjúkdómum, hefur bandarískur fjárfestingarbanki hækkað verðmatsgengi sitt á félaginu um meira en tvöfalt. Greinendur hans telja að lyfið, eitt af þremur sem eru í þróun hjá Oculis, sé „verulega vanmetið tækifæri“ og geti eitt og sér mögulega skilað milljörðum dala í tekjum fyrir félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×