Vaxandi álag á fagfólk innan velferðarþjónustu Steinunn Bergmann skrifar 19. febrúar 2026 13:15 Félagsráðgjafafélag Íslands lýsir áhyggjum af vaxandi álagi á félagsráðgjafa og annað framlínufólk innan velferðarþjónustu. Álagið hefur farið stigvaxandi og leita þarf lausna til að tryggja velferð og öryggi bæði starfsfólks og þeirra sem treysta á velferðarþjónustu. Félagsráðgjafar sinna flóknum og viðkvæmum málum á hverjum einasta degi, hvort sem um er að ræða barnavernd, málefni fatlaðra, aldraðra, flóttafólks, heimilislausra, geðheilbrigðisþjónustu eða margvíslega aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur í erfiðleikum. Félagsráðgjafar glíma við streitu og kulnun, annars stigs áfallastreitu og erfiðleika við að veita þá þjónustu sem fólk þarfnast. Þá er ofbeldi í garð félagsráðgjafa er raunveruleg og vaxandi ógn. Á sama tíma hefur krafa um skráningar og skýrslugerð aukist og verja félagsráðgjafar allt að 80% vinnudagsins í skráningar, skýrslugerð og umsýslu á kostnað þess sem skiptir mestu, beinum samskiptum við skjólstæðinga. Þetta bitnar á gæðum þjónustunnar og þeim sem mest þurfa á henni að halda. Þegar tími til samveru og tengsla minnkar, minnkar líka möguleikinn á að greina vandann tímanlega og koma til aðstoðar áður en hlutir fara úr böndunum. Framtíð velferðar Helle Øbo, framkvæmdastjóri AskovFonden og stofnandi RELATION.DK hefur fjallað um framtíð velferðar og hvernig færa megi velferðarkerfi frá kerfislægri nálgun í tengslamiðaða velferð með áherslu á mannlega nálgun og samfélagslega ábyrgð. “From system welfare to relational welfare”. Hún hefur bent á hvernig hægt er að mæla áhrif tengslanálgunar, meðal annars með hjálp tæknilausna. Hún þróaði appið Relationsmåling í samstarfi við félagsþjónustu Árósar á árunum 2019–2022. Með appinu er hægt að greina og efla gæði samskipta milli fagfólks og skjólstæðinga og nýta gögn til að efla gagnsæi og mannúð í þjónustu. Helle leggur áherslu á að innleiðing tengslanálgunar krefst hugarfarsbreytingar hjá stjórnendum, starfsfólki og þeim sem móta stefnu. Hún kallar eftir því að mælikvarðar velferðarþjónustu færist frá magntölum yfir í gæði tengsla og umbreytandi áhrif þjónustu. Helle er höfundur bókarinnar „Man møder et menneske“ (2023) þar sem hún fjallar um umbreytandi mátt mannlegra tengsla og hvernig virðing og tengsl geta skapað samfélagsbreytingar. Kjarninn í nálgun Helle er einfaldur en djúpstæður: að öll velferðarþjónusta byggist á mennskum tengslum. Hún minnir okkur á að á bak við öll kerfi, mælikvarða og umbótaverkefni eru manneskjur – með sögur, vonir, ótta og möguleika. Í erindi sínu varpar hún ljósi á hvernig hlýja, virðing og raunveruleg nærvera í mannlegum samskiptum eru ekki eitthvað aukaatriði heldur forsenda þess að velferðarkerfi nái tilgangi sínum. Helle hvetur fagfólk til að halda í hjartað í starfinu og treysta því að mennsk nálgun er bæði áhrifarík og nauðsynleg. Helle Øbo verður lykilfyrirlesari á Félagsráðgjafaþingi sem haldið verður á Hilton Nordica 20. Febrúar. Ofbeldi gegn félagsráðgjöfum – umfang vandans afhjúpað Félagsráðgjafafélag Íslands hefur einnig vaxandi áhyggjur af ofbeldi gagnvart félagsráðgjöfum og framkvæmdi nýlega könnun um andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn félagsráðgjöfum á Íslandi, áhrif þess á starfsöryggi og tillögur að aðgerðum. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á Félagsráðgjafaþingi. Eins og að ofan greinir sinna félagsráðgjafar mikilvægu hlutverki í velferðarþjónustu og hætt við því að vaxandi álag í störfum þeirra leiði til streitu og kulnunar. Niðurstöður rannsóknar frá 2019 sýndu að 44% þátttakenda uppfylltu greiningarskilmerki fyrir örmögnunarröskun, þar af 35% með væg til miðlungs einkenni og 9,3% með alvarleg einkenni. Örmögnunarröskun er klínísk greining sem einkennist af langvarandi streitu og tengist bæði vinnuálagi og persónulegum aðstæðum. Félagsráðgjafafélag Íslands leggur áherslu á að bregðast þurfi við á nokkrum sviðum. Í fyrsta lagi þarf að fjölga starfsfólki í velferðarþjónustu og tryggja að fjöldi mála sem fagfólki er ætlað að sinna sé í samræmi við alþjóðlegar leiðbeiningar. Í öðru lagi þarf að styrkja stuðningskerfi innan stofnana svo sem reglulegt eftirlit, viðeigandi úrræði og markvissar aðgerðir til að bæta vinnuumhverfi. Í þriðja lagi þarf að hækka laun og bæta kjör sem endurspegla þá þekkingu, ábyrgð og tilfinningalegt álag sem fylgir starfi félagsráðgjafa. Velferðarþjónustan er hornsteinn réttláts samfélags. Ef við hlúum ekki að þeim sem þar starfa, gröfum við undan grunninum sem við byggjum öryggisnetið á. Félagsráðgjafafélag Íslands hvetur ríki og sveitarfélög til að bregðast við með raunhæfum og varanlegum úrbótum áður en við missum hæft starfsfólk úr fagstéttinni. Höfundur er félagsráðgjafi MPA og formaður Félagsráðgjafafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar