Meirihluti vill frekar tvö stutt vetrarfrí en eitt lengra Lovísa Arnardóttir skrifar 20. febrúar 2026 07:35 Skólar í Reykjavík eru lokaðir í dag vegna vetrarfrís. Það hófst í gær. Vísir/Vilhelm Meirihluti fólks sem svaraði könnun Þjóðarpúls Gallup um vetrarfrí segist kjósa að vetrarfrí grunn- og framhaldsskóla séu tvö styttri frí, fyrir og eftir áramót.
Vetrarfrí er hafið í mörgum skólum en fríunum er aðeins mismunandi háttað eftir sveitarfélögum og skólum. Flestir kjósa tvö styttri frí. Þjóðarpúls Gallup Í Þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að munur sé á svörum fólks eftir fjölskyldutekjum. Þau sem eru með lægri tekjur kjósa heldur að hafa tvö styttri frí en þau sem eru með hærri tekjur kjósa heldur að hafa eitt lengra frí. Hæst er hlutfallið hjá þeim fjölskyldum sem þéna 800 til 1,2 milljónir á mánuði en 79 prósent þeirra segjast kjósa að hafa frekar tvö stutt frí. Hér má sjá mun eftir tekjum. Þjóðarpúls Gallup Þá eru foreldrar grunnskólabarna líklegri til að kjósa eitt lengra frí en fólk sem á ekki börn í grunnskóla. 70 prósent þeirra sem eiga ekki barn í grunnskóla vilja frekar tvö styttri frí og 30 prósent eitt lengra frí. Af þeim sem eiga barn í grunnskóla vilja 61 prósent að fríin séu tvö stutt og 39 prósent að vetrarfríið sé eitt langt frí. Þeir sem kjósa eitt lengra vetrarfrí vilja flestir hafa það eftir áramót, í febrúar, eða 73 prósent á móti 27 prósentum sem vilja frekar hafa það fyrir áramót, í október. Munur eftir aldri og hvort fólk á grunnskólabarn. Þjóðarpúls Gallup Líklegra er samkvæmt niðurstöðunum að eldra fólk vilji hafa fríið eftir áramót. 86 prósent fólks 60 ára og eldra vilja hafa það í febrúar og 81 prósent þeirra sem eru á aldrinum 40 til 59 ára. Helmingur þeirra yngstu, 18 til 29 ára, vill hafa fríið lengra eftir áramót og helmingur fyrir. Það er hæsta hlutfall þeirra sem vilja hafa það fyrir áramót. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru líklegri til að vilja hafa eitt lengra frí eftir áramót og sömuleiðis þau sem eiga börn í grunnskóla frekar en þau sem eiga þau ekki. Flestir vilja frekar hafa lengra frí eftir áramót. Þjóðarpúls Gallup Niðurstöðurnar eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 13. til 27. nóvember 2025. Heildarúrtaksstærð var 1.832 og þátttökuhlutfall var 43,9 prósent. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Kjaramál Skoðanakannanir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira