Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 22. febrúar 2026 10:11 Vont skyggni var á veginum í gærkvöldi. Teitur Þorkelsson Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í. „Snjó fór að hreyfa við að það hvessti og þá varð afar lítið skyggni. Þá fóru ferðamennirnir að stoppa á veginum, vissu að það fór snjór að hlaðast kringum bílana og það skapaði þessar festur sem fólk var að lenda í og skapaði vandræði fyrir vegagerðartækin sem komust þá ekki fram hjá,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli, Flugbjörgunarsveitin á Hellu, Bróðurhöndin undir Eyjafjöllum og Vík í Vík í Mýrdal voru kallaðar út til að aðstoða ferðalangana. „Það hafðist en tók svolítinn tíma, enda voru ansi margir sem lentu í þessu og okkur telst til að þarna hafi verið á sjötta hundrað bíla, þannig að þetta var eitthvað vel yfir þúsund manns sem þetta hafði áhrif á.“ Ert þú á svæðinu? Festist þú í umferðinni í gærkvöldi? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is. Þú getur einnig sent myndir og myndskeið af ástandinu. Allir hjálpuðust að Engin slys urðu á fólki en ein rúta fór af veginum austan við Vík og þrír bílar skullu saman uppi á Reynisfjalli. Flytja þurfti fólk úr bílunum áleiðis þar sem þeir voru skemmdir. „En að öðru leyti gekk þetta áfallalaust, þetta var bara pínu kaós eins og einhver lýsti því og úr því þurfti að leysa. Að því komu lögreglan, björgunarsveitir og bændur í sveitinni sem komu á dráttarvélum,“ segir Jón Þór. „Það hjálpuðust allir að á þessum tíma.“ Til stóð að opna fjöldahjálparstöð en Jón Þór segir að varla hafi verið búið að opna dyrnar þegar leystist úr málinu svo ekki reyndi á hana. Mynd af vefsíðu Vegagerðarinnar, tekin klukkan tíu.Vegagerðin Samkvæmt upplýsingum af vef Vegagerðarinnar er núna krap á veginum en unnið er við mokstur. Gul veðurviðvörun er í gildi á öllu Suðurlandi til hádegis. „Við vonumst til að það gangi tiltölulega greiðlega í dag, en við verðum bara að bíða og sjá.“ Veður Færð á vegum Björgunarsveitir Umferð Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
„Snjó fór að hreyfa við að það hvessti og þá varð afar lítið skyggni. Þá fóru ferðamennirnir að stoppa á veginum, vissu að það fór snjór að hlaðast kringum bílana og það skapaði þessar festur sem fólk var að lenda í og skapaði vandræði fyrir vegagerðartækin sem komust þá ekki fram hjá,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli, Flugbjörgunarsveitin á Hellu, Bróðurhöndin undir Eyjafjöllum og Vík í Vík í Mýrdal voru kallaðar út til að aðstoða ferðalangana. „Það hafðist en tók svolítinn tíma, enda voru ansi margir sem lentu í þessu og okkur telst til að þarna hafi verið á sjötta hundrað bíla, þannig að þetta var eitthvað vel yfir þúsund manns sem þetta hafði áhrif á.“ Ert þú á svæðinu? Festist þú í umferðinni í gærkvöldi? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is. Þú getur einnig sent myndir og myndskeið af ástandinu. Allir hjálpuðust að Engin slys urðu á fólki en ein rúta fór af veginum austan við Vík og þrír bílar skullu saman uppi á Reynisfjalli. Flytja þurfti fólk úr bílunum áleiðis þar sem þeir voru skemmdir. „En að öðru leyti gekk þetta áfallalaust, þetta var bara pínu kaós eins og einhver lýsti því og úr því þurfti að leysa. Að því komu lögreglan, björgunarsveitir og bændur í sveitinni sem komu á dráttarvélum,“ segir Jón Þór. „Það hjálpuðust allir að á þessum tíma.“ Til stóð að opna fjöldahjálparstöð en Jón Þór segir að varla hafi verið búið að opna dyrnar þegar leystist úr málinu svo ekki reyndi á hana. Mynd af vefsíðu Vegagerðarinnar, tekin klukkan tíu.Vegagerðin Samkvæmt upplýsingum af vef Vegagerðarinnar er núna krap á veginum en unnið er við mokstur. Gul veðurviðvörun er í gildi á öllu Suðurlandi til hádegis. „Við vonumst til að það gangi tiltölulega greiðlega í dag, en við verðum bara að bíða og sjá.“
Ert þú á svæðinu? Festist þú í umferðinni í gærkvöldi? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is. Þú getur einnig sent myndir og myndskeið af ástandinu.
Veður Færð á vegum Björgunarsveitir Umferð Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira