Innherji

Ekki lengur stærsti er­lendi hlut­hafinn eftir að hafa selt fyrir nærri fjóra milljarða

Hörður Ægisson skrifar
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, en bankinn skilaði 11,2 prósenta arðsemi á eigið fé sitt í fyrra. Nýtt arðsemismarkmið gerir ráð fyrir að afkoman verði yfir 13 prósent innan fáeinna ára. 
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, en bankinn skilaði 11,2 prósenta arðsemi á eigið fé sitt í fyrra. Nýtt arðsemismarkmið gerir ráð fyrir að afkoman verði yfir 13 prósent innan fáeinna ára.  Vísir/Anton Brink

Bandaríska sjóðastýringarfélagið Capital Group er ekki lengur stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka eftir að hafa verið statt og stöðugt á söluhliðinni í bankanum frá því um miðjan janúar. Á þeim tíma hefur gengið lækkað um liðlega sjö prósent.


Tengdar fréttir

„Engar teljandi tafir“ orðið í sam­runa­viðræðum Skaga og Ís­lands­banka

Þrátt fyrir vendingar innan stjórnar Íslandsbanka, sem er núna undir forystu fjárfestisins Heiðars Guðjónssonar, þá segir forstjóri Skaga að „engar teljandi tafir“ hafi orðið í samrunaviðræðum félaganna að undanförnu og samrunatilkynning til að skila inn á borð Samkeppniseftirlitsins sé langt komin. Sumir hluthafar Íslandsbanka hafa gagnrýnt það sem þeim finnst vera óhagstæð verðlagning á bankanum í fyrirhuguðum viðskiptum og á nýafstöðnum hluthafafundi svaraði bankastjórinn því til að ný stjórn hefði „tæki og tól“ til að endurmeta samninginn.

„Ekki mikill vilji“ meðal hlut­hafa að sam­runinn við Skaga klárist óbreyttur

Nýkjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka telur „allt í lagi líkur“ á því á að boðaður samruni við Skaga muni klárast, en tekur hins vegar fram að hann telji að það sé „ekki mikill vilji“ fyrir því á meðal hluthafa að viðskiptin muni ganga í gegn óbreytt frá því sem um var samið á síðasta ári.

Einka­fjár­festarnir sem vilja leiða Heiðar til for­ystu í stjórn Ís­lands­banka

Heiðar Guðjónsson, sem fer fyrir hópi sem telur á annan tug einkafjárfesta, hélt áfram að stækka stöðu sína í Íslandsbanka nokkrum dögum áður en hann fór fram á að boðað yrði til hluthafafundar þar sem hann ætlar að sækjast eftir stjórnarformennsku núna þegar félagið er í samrunaviðræðum við Skaga. Þótt beinn stuðningur við Heiðar komi einkum úr röðum umsvifameiri einkafjárfesta, sumir hverjir sem tengjast honum nánum böndum eins og Andri Sveinsson, þá eru einnig ýmsir lífeyrissjóðir sagðir áfram um að hann geri sig gildandi í stjórn bankans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×