Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Kjartan Kjartansson skrifar 23. febrúar 2026 08:24 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Stjórnarráðið Mögulegt er sagt að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild að Evrópusambandinu gæti verið haldin strax í ágúst á þessu ári. Á sama tíma er vaxandi stuðningur sagður við stækkun Evrópusambandsins í ljósi væringa á alþjóðasviðinu.
Evrópska útgáfa dagblaðsins Politico hefur eftir tveimur ónefndum heimildarmönnum sínum sem það segir þekkja til undirbúnings fyrir aðildarviðræður Íslands að þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram strax í ágúst. Fréttin var efst á vefsíðu Politico í morgun. Alþingi taki ákvörðun um tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á næstu vikum samkvæmt sömu heimildum. Flýtirinn skýrist meðal annars af ákvörðun Bandaríkjastjórnar um að leggja tolla á íslenskar vörur og hótanir hennar um að innlima Grænland. Fundað hafi verið stíft um mögulegt framhald á aðildarviðræðum Íslands bæði á Íslandi og í Brussel að undanförnu. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB fari fram „ekki síðar“ en á næsta ári. Brexit gæti einfaldað viðræður um sjávarútveg Marta Kos, stækkunarstjóri ESB, segir umræður um stækkun sambandsins hafa tekið breytingum að undanförnu. Hún fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, í Brussel í síðasta mánuði. „Hún snýst í auknum mæli um öryggi, um að tilheyra og að standa vörð um getu okkar til að vera leikendur í heimi sem er skipt upp í áhrifasvæði. Þetta er öllum Evrópubúum áhyggjuefni,“ segir Kos. Ísland hóf aðildarviðræður við Evrópusambandið eftir hrun en þær voru settar á ís árið 2013. Núverandi ríkisstjórn hefur boðað þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp þráðinn á ný.Vísir/EPA Aðstæður eru sagðar hafa breyst verulega frá því að þáverandi ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar bað um að Ísland yrði ekki lengur talið umsóknarríki árið 2015. Stærsta breytingin er útganga Bretlands úr Evrópusambandinu en Ísland og Bretland eiga langa átakasögu um fiskveiðar. Brotthvarf þeirra er sagt geta gert sjávarútvegsmálin, sem séu helsta bitbeinið þegar kemur að mögulegri aðild Íslands að sambandinu, einfaldari. Aðildarviðræðurnar gætu tekið snöggt af samþykki Íslendingar að hefja þær aftur. Ísland og ESB höfðu þegar lokað þriðjungi samningskafla þegar umsóknin var fryst á sínum tíma. Heimildarmaður Politico í Brussel segir að aðildarferlið gæti tekið aðeins eitt ár. Næðust samningar þyrfti aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Íslendingar vildu ganga í sambandið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira