Stjórinn sem sótti Viktor og seldi Orra rekinn úr starfi Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. febrúar 2026 11:01 Sune Smith-Nielsen hefur verið látinn fara frá FC Kaupmannahöfn eftir samtals sautján ára starf fyrir félagið. FCK Sune Smith-Nielsen hefur verið rekinn úr starfi íþróttastjóra FC Kaupmannahafnar. Meðal hans stærstu sigra í starfi fyrir félagið voru kaup og sölur á Íslendingum en árangur liðsins á tímabilinu hefur ekki staðið undir væntingum.
Smith-Nielsen vann fyrir FCK í rúmlega sautján ár. Áður en hann tók við starfi íþróttastjóra í júlí 2024 var hann yfirmaður leikmannakaupa fyrir yngri flokkanna. Eitt af því síðasta sem hann gerði sem yfirmaður yngri flokka var að kaupa Viktor Bjarka Daðason til félagsins frá Fram, í janúar 2024. Eitt af því fyrsta sem hann gerði síðan sem íþróttastjóri var að selja Orra Stein Óskarsson til Real Sociedad, í ágúst 2024. Orri Steinn var seldur fyrir tuttugu milljónir evra, sem var metsala fyrir FCK. Viktor Bjarki hefur blómstrað fyrir félagið á tímabilinu og jafnvel er búist við því að hann slái félagaskiptametið ef hann verður seldur í sumar. FCK er ríkjandi meistari en situr í 7. sæti dönsku deildarinnar og er í hættu á að missa af sæti í efri hlutanum ef liðið vinnur ekki Randers á sunnudaginn, í síðustu umferðinni fyrir tvískiptingu. „Mín fyrsta hugsun er að þetta þurfti að gerast. Miðað við það sem hefur verið í gangi hjá FCK hefði verið mjög furðulegt að sjá ekki breytingar á skrifstofunni. Það er gríðarleg pressa á FC Kaupmannahöfn, þannig að það var í rauninni nauðsynlegt að færa einhvers konar fórn“ sagði sparkspekingur danska ríkisútvarpsins, Andreas Kraul.
Danski boltinn Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira