Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Kjartan Kjartansson skrifar 24. febrúar 2026 08:26 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrrverandi utanríkisráðherra. Vísir/Ívar Fannar Fyrrverandi utanríkisráðherra segir samband Íslands við Evrópu ekki þurfa að vera já eða nei spurningu og hægt sé að auka samstarfið án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann óttast að umræðan festist í hjólförum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður.
Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um hvort taka eigi upp viðræður um aðild að Evrópusambandinu á ný ekki síðar en á næsta ári. Í gær sagði evrópskt dagblað fréttir af því að atkvæðagreiðslan gæti farið fram þegar í ágúst en utanríkisráðherra gaf ekkert út um hvort eitthvað væri hæft í því. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, harmaði hversu takmörkuð umræðan um Evrópusambandsmál væru á Íslandi í hlaðvarpsviðtali á föstudag. Ástæðan væri að hluta til sú að í baklandi helstu hagsmunaaðila væru afar ólík sjónarmið. Hluti hefði engan áhuga á að taka umræðu um aðild. Að sama skapi sagðist Þórdís Kolbrún telja að ríkisstjórn sem setti málið á dagskrá þyrfti að rökstyðja mál sitt frekar. „Þetta er ógeðslega flókið. Mér finnst bara umræðan heima rosalega takmörkuð frá í rauninni öllum,“ sagði Þórdís Kolbrún í hlaðvarpinu „Veröld sem er“ á vegum hugveitunnar Evrópustrauma. Borðleggjandi að vinna nánar með Bretum og Norðmönnum Sjálf sagðist hún telja að það væri til millivegur á milli óbreytts ástands og þess að ganga í Evrópusambandið. Þannig gæti Ísland aukið samstarf við Evrópulönd án þess að ganga í sambandið sjálft. „Það blasir við að við eigum að vinna nánar og þéttar með Bretlandi og Norðmönnum, sérstaklega þegar kemur að sviði öryggis- og varnarmála,“ sagði Þórdís Kolbrún. Tók hún undir með Hallgrími Oddssyni, stjórnanda hlaðvarpsins, að svarið við spurningunni um aðild að ESB væri þannig ekki endilega já eða nei. „En ég hef aðeins áhyggjur af því að af því að við stöndum frammi fyrir já eða nei spurningu þá séum við svolítið að festast í hjólförum og á meðan líður tíminn þar sem aðrar breytingar eiga sér stað,“ sagði hún. Skrýtið að ekki sé rætt meira um varnir Íslands Þórdís Kolbrún sagðist alltaf hafa verið þeirrar skoðunar að Ísland þyrfti ekki að ganga í Evrópusambandið. Ísland nyti þegar þess besta úr samvinnunni í gegnum EES-samninginn og EFTA-samstarfið færði því fríverslunarsamninga sem íslensk stjórnvöld gætu ekki gert ein. Þá væru varnir landsins tryggðar með tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkin og aðildinni að Atlantshafsbandalaginu. „Þetta er bara góður leikvöllur til að spila á þegar það eru opin alþjóðaviðskipti, við erum með fælingarmátt, aðgengi að stórum markaði og þetta gengur,“ sagði Þórdís Kolbrún. Mikið er rætt um framtíð alþjóðakerfisins sem hefur verið við lýði frá lokum síðari heimsstyrjaldar þar sem Bandaríkin heyja tollastríð gegn bandalagsþjóðum sínum og þarlend stjórnvöld eiga í sífellt stirðara sambandi við önnur vestræn lýðræðisríki. Þórdís Kolbrún benti á að í þessu andrúmslofti leituðu Kanada, Bretland og Noregur til Evrópu um samstarf um tollavarnir, aðallega gegn Bandaríkjunum. „Þá finnst mér alveg aðeins skrýtið að það er nánast engin umræða um það heima hvort þessar efnahagslegu varnir séu nægilega sterkar. Myndum við þola einhvern þrýsting eða einhverja atburðarás sem við erum ekki leikandi í [...] sem getur haft áhrif á okkar stöðu sem útflutningsríki?“ spurði hún.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira