Bikarmeistarablús í Höllinni í boði Ármenninga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2026 20:54 Jónína Þórdís Karlsdóttir, fyrirliði Ármannsliðsins, var með þrettán fráköst og tíu stoðsendingar í kvöld. Vísir/Anton Ármann byrjar frábærlega í neðri hluta Bónusdeildar kvenna í körfubolta því liðið vann óvæntan níu stiga sigur á bikarmeisturum Keflavíkur í kvöld, 84-75.
Keflavík er efst í neðri hlutanum þegar keppni hefst en Ármann sat í neðsta sætinu með aðeins tvo deildarsigra í allan vetur. Það er því óhætt að segja að þessi úrslit hafi komið mörgum á óvart en það voru margar að spila mjög vel fyrir Ármannsliðið í kvöld. Íslensku stelpurnar voru í stuði í þessum leik. Sylvía Rún Hálfdanardóttir var frábær með sín 23 stig auk fjögurra stolinna bolta en hún hitti úr 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum. Dzana Crnac skoraði 19 stig og fyrirliðinn Jónína Þórdís Karlsdóttir var með 7 stig, þrettán fráköst og tíu stoðsendingar. Kylie Savannah Kornegay-Lucas fór einnig á kostum, skoraði 22 stig, tók 18 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Í vörninni varði hún þrjú skot og stal fjórum boltum. Keishana Washington var langatkvæðamest hjá Keflavík en hún skoraði 24 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði tólf stig og Angelina Turmel var með ellefu stig. Tvíburasysturnar Sara Rún og Bríet Sif Hinriksdætur sem fóru á kostum í síðasta leik hittu aðeins úr 1 af 16 skotum sínum og enduðu með þrjú stig samanlagt og -10 í framlagi. Þær voru einnig með níu tapaða bolta saman og áttu algjörugan hauskúpuleik sem Keflavíkurkonur máttu alls ekki við.
Bónus-deild kvenna Ármann Keflavík ÍF Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira