Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 19:02 Hafdís Ragnarsdóttir, Ingvi Teitsson sonur hennar og Teits Magnússonar. Fjölskyldan hefur þurft að ganga í gegnum mikla erfiðleika vegna veikinda Ingva. Vísir Móðir fimmtán ára drengs með afar fjölþættan vanda segir algjört ráðaleysi ríkja gagnvart honum og fjölskyldunni í velferðarkerfinu. Mál hans hafi fyrst verið skoðað heilstætt þegar hann fékk alvarlegt flogakast þá ellefu ára gamall. Fjölskyldan hefur miklar áhyggjur af afdrifum hans og kallar eftir úrræðum.
Fljótlega eftir að Ingvi fæddist fyrir ríflega fimmtán árum komu í ljós alls kyns líkamleg og andleg veikindi. Foreldrar hans leituðu margoft með hann til sérfræðinga í heilbrigðis- og félagslega kerfinu með litlum árangri að sögn móður hans. „Við sjáum strax að hreyfiþroski hans var ekki eðlilegur, hann byrjaði ekki að tala fyrr en í grunnskóla, hægri og vinstri hlið vex ekki jafnt. Hann finnur ekki sársauka heldur notar sjón til að meta aðstæður og verður ekki saddur. Þetta og margt annað varð til þess að við leituðum til alls kyns lækna með hann en fengum enga heildstæða lausn,“ segir Hafdís Ragnarsdóttir móðir hans. Áralangt svefnleysi og bræðiköst Hafdís segir að Ingvi hafi þjáðst af miklum svefntruflunum til ellefu ára aldurs þegar hann fékk loks meðferð. Hann hafi vaknað allt að sjö sinnum á nóttu og verið andvaka í hvert skipti. Þetta hafi haft áhrif á alla fjölskylduna. Þá hafi skólagangan tekið sífellt meira á hann vegna veikindanna og samfara því hafi hann fengið alvarleg bræðiköst sem bitnuðu á henni. Hún segir það hafa verið ólýsanlega erfitt. „Maður vill barninu sínu allt það besta. En að eiga barn sem tekur alvarleg bræðiköst á mann hvað eftir annað er erfiðara en orð geta lýst. Ég var hrædd við hann í þessum ham og að hann skaðaði sig,“ segir Hafdís. Ingvi Teitsson. Það var svo ekki fyrr en Ingvi var orðinn ellefu ára sem læknir á bráðadeild Landspítala ákvað að skoða mál hans heildstætt eftir að hann fékk alvarlegt flogakast heima hjá sér. „Þrátt fyrir allt sem hafði dunið á um árabil var enginn sem horfði á sjúkrasögu hans í heild og greip okkur. Það gerist í raun ekki fyrr en hann fær fyrsta alvarlega flogakastið að læknir á bráðdeild Landspítalans aðstoðar okkur og skoðar málið hans heildstætt. Læknirinn beindi okkur að fara með hann í greiningu hjá sálfræðingi, sem við greiddum sjálf,“ segir Hafdís. Sjaldgæfur ónafngreindur sjúkdómur Í framhaldinu kom í ljós að Ingvi er með sjaldgæfan ónafngreindan erfðasjúkdóm sem veldur m.a. flogum, slakri vöðvaspennu, truflun í taugaboðum, taugaþroskaröskun og tourette. Hún segir að þrátt fyrir allt þetta og meira til hafi engin lausn eða aðstoð verið í boði fyrir Ingva eða fjölskylduna eftir ferlið. „Það var ekkert sem tók við,“ segir Hafdís. Ingva leið illa í hefðbundnum skóla á þessum tíma og því ákváðu foreldrar hans að setja hann í einkaskólann, Nú-Framsýn menntun, þar sem honum hefur liðið betur síðustu ár. Hann útskrifast úr grunnskóla í vor en ekki liggur fyrir hvað tekur við. „Ég veit það ekki, það er alveg óljóst hvaða lausnir eru í boði fyrir hann,“ segir Hafdís. Fjölskyldan hefur áhyggjur. „Við erum kvíðin og stressuð fyrir framtíðinni og hvað er að fara að gerast,“ segir hún. Auglýsir eftir heildstæðri lausn Fjölskyldan leitaði til félagsins Einstakra barna fyrir nokkrum árum þar sem Hafdís segist hafa fengið ómetanlegan stuðning. Hún telur að staðan á Ingva og fjölskyldunni væri önnur ef sérstök miðstöð fyrir sjaldgæfa sjúkdóma, sem gæti boðið heildræna lausn, væri komin á fót. -„Ef slík lausn væri í boði hefðum við getað sloppið við að flakka endalaust milli staða með Ingva án árangurs,“ segir Hafdís. Lengra viðtal við Hafdísi um mál Ingva og fjölskyldunnar verður sýnt í Íslandi í dag annað kvöld.
Börn og uppeldi Félagsmál Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Fleiri fréttir Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Sjá meira