Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heimatilbúinn Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 16:45 Skoða á sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir áhyggjur foreldra af öryggi og aðgengi. Magnea Gná Jóhannsdóttir samdi tillöguna sem meirihlutinn lagði fram. Reykjavíkurborg Skoða á sérstök sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir ábendingar foreldra um erfiða og óörugga aðkomu. Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir að ekki hafi verið nægilega hugað að aðgengi foreldra sem koma með börn sín á bíl.
Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag. „Tillagan er lögð fram í kjölfar samtala minna við foreldra barna í leikskólanum, sem hafa lýst áhyggjum af öryggi og aðgengi að leikskólanum. Foreldrar hafa upplifað aðstæður við aðkomu að leikskólanum sem bæði erfiðar og óöruggar,“ segir Magnea Gná. Ekki nægilega hugað að aðkomunni Hún segir foreldra lengi hafa bent á að aðgengið sé ófullnægjandi þegar ung börn eru sótt eða þeim skilað. „Þetta er að mörgu leyti heimatilbúinn vandi. Leikskólinn er á þéttingarreit en við skipulagið var ekki nægilega hugað að því hvernig foreldrar sem koma á bíl eiga að geta komið börnunum sínum örugglega til og frá leikskólanum.“ Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir aðgengisvandann við leikskólann að mörgu leyti heimatilbúinn. Ekki hafi verið nægilega hugað að foreldrum sem koma með börn sín á bíl. Leikskólinn rúmar sextíu börn í fjórum deildum og er ætlaður börnum frá tólf mánaða aldri til þriggja ára. Í greinargerð tillögunnar segir að takmarkað framboð bílastæða í nágrenninu geti gert foreldrum erfitt fyrir. Skoða á staðsetningu sérmerktra skammtímastæða, merkingar og tímamörk svo þau nýtist við að sækja og skila börnum. Útfærslan verður síðan lögð fyrir ráðið. Lærdómur fyrir aðra leikskóla Magnea segir mikilvægt að bregðast við ábendingum foreldra. „Þetta er líka lærdómur sem við eigum að taka með okkur í skipulagningu annarra leikskóla, aðgengi foreldra og öryggi barna þarf að vera hugsað inn í skipulagið frá upphafi.“ Ráðið samþykkti jafnframt tillögu áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um að skoða sambærileg stæði við fleiri skólabyggingar þar sem þau vantar. Sú tillaga nær til leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs.
Leikskólar Skipulagsmál Börn og uppeldi Samgöngumál Reykjavík Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira