Innlent

Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla

Smári Jökull Jónsson skrifar
Rakel og Sigurður voru gestir Bítisins á Bylgjunni í morgun.
Rakel og Sigurður voru gestir Bítisins á Bylgjunni í morgun. Vísir

Kennarar sem sinnt hafa einkakennslu í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna segja það mikið högg að Starfsmenntunarsjóður ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu. Þá segja þeir að kröfur sem menntamálaráðuneytið setji til að fá vottun sem viðurkenndur fræðsluaðili séu ómögulegar að uppfylla fyrir einstaklinga.

Kennararnir Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson voru í viðtali í Bítinu í morgun þar sem þau fóru yfir málið. Þar kom fram að starfsmenntunarsjóðurinn Starfsafl ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu í íslensku sem öðru máli.

Starfsgreinasambandið og SA eru meðal þeirra sem eru aðilar að sjóðnum en samkvæmt Rakel og Sigurði munu aðeins þeir sem sækja námskeið hjá símenntunarstofnunum fá endurgreiðslu vegna íslenskunáms.

„Þær bjóða gjarnan upp á nám fyrir þá sem eru byrjendur og þar eru alltaf ákveðnir pakkar. Við erum með fjölbreyttari hóp, fólk sem er komið lengra og vill kannski leggja áherslu á talið og málfræðina sem tengist því sem það er að segja, til dæmis fagorðaforða sem tengist atvinnu þeirra,“ sagði Rakel í Bítinu í morgun.

Sigurður bætir við að hann hafi ekkert út á símenntunarstofnanirnar að setja sem séu fínir skólar.

„Þetta er staðlaða mótið sem fólk fer í en það er bara ekki fyrir alla, til dæmis þá sem eiga erfitt með að læra í hópumhverfi. Fólk sem er í vaktavinnu getur líka átt mjög erfitt með að komast á regluleg námskeið, mánudaga til fimmtudaga frá níu til tólf í sex vikur.“

Kennarar að mennt en fá samt ekki vottun

Þau segja að Starfsafl hafi tekið þá ákvörðun að ekki verði greitt fyrir kennslu nema hjá þeim sem eru skilgreindir fræðsluaðilar en menntamálaráðuneytið sér um slíka vottun. 

„Það ber með sér kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla. Megnið af minni einkakennslu fer fram í gegnum netið en partur af því að verða viðurkenndur fræðsluaðili er að fá brunaeftirlitið á svæðið, sem gefur manni stimpil, og heilbrigðiseftirlitið. Það er hugmynd sem meikar ekkert sens fyrir einstakling sem kennir í stofunni sinni.“

Bæði Rakel og Sigurður eru kennarar að mennt en hafa engu að síður ekki fengið vottun hjá ráðuneytinu. Rakel segir að hún hafi verið í samskiptum við menntamálaráðuneytið sem og Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu.

„Mér var allavega vísað fram og til baka. Við vorum að reyna að fá skilning á því að við erum ekki eins og Mímir, við erum ekki með stórt húsnæði með mörgum skólastofum þar sem þarf að tryggja aðgengi fatlaðra og hvort salernið uppfylli kröfur fyrir stóra hópa.“

Aðrir sjóðir ætla sömu leið

Þau segjast bæði vera með biðlista eftir nemendum sem vilja komast að í kennslu.

„Ég skil að starfsmenntunarsjóðir vilji hafa vottun um að viðkomandi hafi kennsluréttindi en leyfið mitt er til dæmis aðgengilegt á vefsíðunni minni,“ bætir Rakel við.

Þau segja að um sé að ræða á milli 20 og 30 einkakennara sem sinna þessu starfi á landsvísu.

„Þetta er högg og það var talað um við mig að aðrir sjóðir væru að fara aðra leið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×