Innlent

Lægðin hefur alla burði til að verða sögu­leg

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Lægðin sem fer yfir landið á morgun hefur alla burði til þess að verða söguleg, að mati veðurfræðings. Icelandair hefur boðið farþegum í innanlandsflugi að breyta bókunum sínum. Líkur eru á rafmagnstruflunum á Vestfjörðum en áhrifin verða ekki mikil á höfuðborgarsvæðinu ef spá gengur eftir. Farið verður ítarlega yfir veðurhvellinn sem von er á, á morgun í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Bændur á Norðurlandi vestra eru nú í óðaönn að undirbúa tilfærslu á skepnum af túnum og koma þeim í skjól eða á hús, áður en vonskuveður skellur á, á morgun. Á hrossaræktarbúinu Bessastöðum við Hrútafjörð eru undirbúningur hafinn fyrir veðurhvellinn. Rætt verður við Jóhann Magnússon, sem var að færa til hesta sína þegar fréttastofan náði tali af honum.

Þá verður rætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, sem viðurkennir að hafa gert mistök við skipun fólks í Jafnréttisráði. Sjóðurinn var skipaður þremur konum sem hafi verið mistök að hennar mati.

Einnig verður rætt við atvinnuvegaráðherra segir að ekki hafi verið skoðað að stöðva eða setja hömlur á uppbyggingu sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Hún fundar með fulltrúum náttúruverndarsamtaka á morgun.

Þá hugum við að ófriði fyrir botni Miðjarðarhafs, en þar er Air Atlanta með umfangsmikla starfsemi. Í hádegisfréttum segir framkvæmdastjóri félagsins að Air Atlanta hafi dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði vegna ástandsins á svæðinu. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu.

Þetta og fleira í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu tólf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×