Innlent

Enn versnar spáin með nýjum við­vörunum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Regnhlífar gætu týnst í massavís á morgun.
Regnhlífar gætu týnst í massavís á morgun. Vísir/Vilhelm

Enn versnar spáin fyrir morgundaginn og mun Veðurstofan gefa út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð til viðbótar við þær sem gefnar hafa verið út fyrir Vestfirði og Norðurland vestra.

Teitur Arason veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir meiri veðurhæð á Suðurlandi og við Breiðafjörð en fyrri spár gáfu til kynna.

„Annars búumst við við því að þessi djúpa og krappa óveðurslægð nálgist landið í nótt og skil frá henni gangi inn á land í fyrramálið með mikilli úrkomu og austanstormi. Hríð, slydda eða snjókoma til fjalla á vestanverðu og norðanverðu landinu, svo gengur lægðarmiðjan inn á land og þá minnkar vindurinn sunnan- og austanlands og úrkoman líka,“ segir hann.

Gengið gæti í norðanstorm með snjókomu niður undir sjávarmál á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.

„Þar er útlit fyrir versta veðrið í samfara þessari lægð, það er að segja norðanstormur og snjókoma, sem kallast stórhríð þegar fer saman,“ segir Teitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×