Hreyfingin stærri en einstakar persónur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. október 2026 11:53 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði 47. þing ASÍ í morgun. Hún lagði meðal áherslu á að berja niður vantraust og auka traust innan ASÍ sem og annars staðar í samfélaginu. ASÍ Forsætisráðherra segir sameinaða verkalýðshreyfingu miklu stærri en stök félög, einn flokkur og hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Hún hvatti til þess að byggt yrði upp meira traust í samfélaginu og innan ASÍ. Deilur milli forystumanna í verkalýðshreyfingunni lita 47. þing ASÍ sem var sett í morgun.
Þingið er meðal annars haldið í skugga deilna formanns Eflingar við formann VR sem mögnuðust við framlengingu kjarasamninga á dögunum. Þá er spenna í loftinu um hver tekur við sem forseti af Finnbirni Hermannssyni sem lætur af störfum. „Sameinuð verkalýðshreyfing er miklu stærri en stök félög, einn flokkur eða hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Og það segi ég af fullri virðingu fyrir stórum persónuleikum sem takast á innan Alþýðusambandsins – enda ekkert nýtt að það standi styr um menn og málefni í þessari hreyfingu,“ sagði Kristrún í ræðu sinni sem sjá má í heild að neðan. Tómas Arnar fréttamaður okkar ræddi við Sólveigu Önnu, formann Eflingar, Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseta ASÍ, í morgun. Friður á vinnumarkaði tryggður Kristrún ræddi samtöl ríkisstjórnarinnar við ASÍ og Samtök atvinnulífsins undanfarna mánuði. „Og ég vil hrósa Alþýðusambandinu sérstaklega fyrir sína aðkomu og ábyrga nálgun í þessu verkefni – ekki síst Finnbirni Hermannssyni, fráfarandi forseta, um leið og ég þakka honum kærlega fyrir góða samvinnu og gjöfult starf í þágu verkalýðshreyfingarinnar um áratugaskeið – lengur en ég hef lifað.“ Það sé ánægjulegt að hans drjúgu aðkomu að þessum verkstað skyldi ljúka með eins farsælum hætti og raun bar vitni í síðustu viku. Kristrún klappar fyrir Finnbirni.ASÍ „Við tryggðum friðinn á vinnumarkaði. Með samstilltu átaki. Og nú göngum við í verkin: Févíti fyrir launaþjófnað, keðjuábyrgð í stórframkvæmdum og loksins festa í þróun barnabóta,“ sagði Kristrún og hélt áfram: „Leigubremsa, almennar íbúðir og minna vægi verðtryggingar. 2,5% þak á gjaldahækkanir hjá ríki og sveitarfélögum. 3,5% þak á launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna út árið 2028. Og – ef verðbólguforsendur bresta: 100 þúsund krónur að meðaltali fyrir 20 til 30 þúsund skuldsettar fjölskyldur með einskiptisvaxtabótum.“ Allt þetta á sama tíma og fjárlög verði hallalaus í fyrsta skipti í að verða áratug. Í þeim tilgangi að hætta að reka ríkissjóð á yfirdrætti sem sæe það mikilvægasta sem ríkið geti gert til að kynda ekki undir verðbólgu. „Já – ég trúi því að þetta verði vendipunktur í baráttunni við verðbólguna. Sem stendur í tæpum 6% núna en hefur verið 5% að meðaltali frá aldamótum. Við vitum öll hvaða afleiðingar hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur haft. En nú erum við að snúa við blaðinu – ef allir standa við sitt – með samstilltu átaki. Það er fagnaðarefni,“ sagði Kristrún og bað fólk um að klappa fyrir Finnbirni sem skili sannarlega góðu búi. Brjótum niður vantraust „Ég er ekki komin hingað til að segja ykkur að allt sé fullkomið eða að allt þetta sem gengur svo vel á Íslandi sé ríkisstjórninni að þakka. Alls ekki – enda vinnst ekkert í stjórnmálum með stórum orðum heldur aðeins með stórum verkum. Ég er líka fyllilega meðvituð um framlag forvera minna úr ýmsum flokkum. Og það eru ærin verkefni framundan,“ sagði Kristrún. Horfi fólk á stóru myndina þá blasi við að það sé margt sem hægt sé að gera og margt sem hægt sé að sameinast um að gera enn betur á Íslandi. „Leysum mál. Brjótum niður vantraust og byggjum upp traust. Og keyrum á samstöðu – sem færir fólkið í landinu nær hvert öðru en ekki fjær. Hvort sem er í Alþýðusambandinu, í landstjórninni eða í samfélaginu í heild.“ Ræðuna í heild má sjá að neðan. Alþýðusamband Íslands – forseti, þingfulltrúar, kæru félagar: „Eðli verkalýðsbaráttunnar er ekki skyndiupphlaup, hávaðafundir og ævintýri, heldur markvisst, sleitulaust strit fyrir málefnunum sjálfum.“ Ég hef oft vitnað í prentarann að vestan, Jón Baldvinsson, sem mælti þessi orð á örlagaríkum fundi í Gamla bíó í Reykjavík árið 1938 – sem reyndist vera hans síðasti fundur. Þá hafði Jón verið foringi Alþýðusambands og -flokks allt frá stofnárinu 1916. Þegar verkalýðsfélögin komu saman og stofnuðu landssamtök og stjórnmálaflokk. Til að vinna sigra og koma baráttumálum sínum í framkvæmd – ekki aðeins með gerð kjarasamninga – heldur líka með því að bjóða sig fram til sveitarstjórna og Alþingis Íslendinga. Það var róttæk hugmynd árið 1916: að venjulegt vinnandi fólk gæti stjórnað sér sjálft á Íslandi. Fyrst með því að stofna verkalýðsfélög og stjórnmálaflokk. Síðan með því að sigra í kosningum, semja lög og taka ábyrgð á stjórn landsmála. Áður var allt slíkt í höndum lítillar yfirstéttar í landinu: aðalborinna, auðmanna og menntafólks. Hugsið ykkur árangurinn sem hefur náðst. Á 110 árum. II. Já. Þetta er stórhuga hreyfing. Enda er það ekki nema von. Við höfum alltaf verið stórhuga. Og árangurinn talar sínu máli. En verkefni verkalýðshreyfingar og jafnaðarmanna eru eilífðarverkefni: Að verja það sem áunnist hefur og sækja fram til nýrra sigra. Ég veit að þið hér vitið manna best hvað til þarf. Ekki „skyndiupphlaup“ og „hávaðafundi“ – heldur „markvisst, sleitulaust strit“. Úthald til lengri tíma. Til að móta samfélagið okkar í þágu vinnandi fólks, frá einni kynslóð til annarrar, um ókomna tíð. Því að hugmyndin var aldrei að sætta sig við að vera mótmælaafl með kröfuspjöld – eða enn síður með betlistaf – heldur þvert á móti: sterkt og stjórnandi afl sem tekur ábyrgð á Íslandi. Sameinuð verkalýðshreyfing er miklu stærri en stök félög, einn flokkur eða hvað þá einstakir forystumenn í stjórnmálum eða stéttarfélögum. Og það segi ég af fullri virðingu fyrir stórum persónuleikum sem takast á innan Alþýðusambandsins – enda ekkert nýtt að það standi styr um menn og málefni í þessari hreyfingu. En það hefur sýnt sig og er margreynt í gegnum 110 ára sögu: Við erum sterkari saman. III. Þess vegna hef ég átt reglulega fundi með forseta Alþýðusambandsins á síðustu árum – frá því að ég tók við embætti forsætisráðherra og áður sem formaður í Samfylkingu. Ég hlusta, tek gagnrýni og geri mitt besta. Við deilum um mál – en við leysum líka mál. Á síðustu mánuðum hefur ríkisstjórnin átt í þéttu þríhliða samtali við ASÍ og Samtök atvinnulífsins. Og ég vil hrósa Alþýðusambandinu sérstaklega fyrir sína aðkomu og ábyrga nálgun í þessu verkefni – ekki síst Finnbirni Hermannssyni, fráfarandi forseta, um leið og ég þakka honum kærlega fyrir góða samvinnu og gjöfult starf í þágu verkalýðshreyfingarinnar um áratugaskeið – lengur en ég hef lifað. Það er ánægjulegt að hans drjúgu aðkomu að þessum verkstað skyldi ljúka með eins farsælum hætti og raun bar vitni í síðustu viku. Við tryggðum friðinn á vinnumarkaði. Með samstilltu átaki. Og nú göngum við í verkin: Févíti fyrir launaþjófnað, keðjuábyrgð í stórframkvæmdum og loksins festa í þróun barnabóta. Leigubremsa, almennar íbúðir og minna vægi verðtryggingar. 2,5% þak á gjaldahækkanir hjá ríki og sveitarfélögum. 3,5% þak á launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna út árið 2028. Og – ef verðbólguforsendur bresta: 100 þúsund krónur að meðaltali fyrir 20 til 30 þúsund skuldsettar fjölskyldur með einskiptisvaxtabótum. Allt þetta – á sama tíma og við klárum hallalaus fjárlög í fyrsta skipti í að verða áratug. Til að hætta að reka ríkissjóð á yfirdrætti – sem er það mikilvægasta sem ríkið getur gert til að kynda ekki undir verðbólgu. Já – ég trúi því að þetta verði vendipunktur í baráttunni við verðbólguna. Sem stendur í tæpum 6% núna en hefur verið 5% að meðaltali frá aldamótum. Við vitum öll hvaða afleiðingar hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur haft. En nú erum við að snúa við blaðinu – ef allir standa við sitt – með samstilltu átaki. Það er fagnaðarefni. Og Finnbjörn skilar sannarlega góðu búi. Gefum honum gott klapp! IV. Við höfum einnig átt gott samstarf við Samtök atvinnulífsins. Á síðustu árum má segja að ýmis jákvæð skref hafi verið stigin varðandi umgjörð vinnumarkaðarins, samtal aðila vinnumarkaðar við stjórnvöld og þróun félagslegra stuðningskerfa – þó að margt megi auðvitað ennþá betur fara. Ég nefni sem dæmi það fyrirkomulag sem var innleitt varðandi þróun þrepamarka í tekjuskattinum fyrir nokkrum árum – sem við höfum nú ákveðið að útvíkka þannig að það nái einnig til barnabóta. En húsnæðismál eru dæmi um málaflokk þar sem við verðum að herða okkur og hrista upp í kerfinu til að ásættanlegur árangur náist – líkt og ríkisstjórnin hefur nú boðað varðandi almenna íbúðakerfið. Í mínum huga er ljóst að við getum haldið áfram að stíga slík skref og vinna að umbótum á íslenskum vinnumarkaði á næstu árum. Til að tryggja aukinn efnahagslegan og félagslegan stöðugleika. Það er jafnljóst að breytingar á grundvallarleikreglum vinnumarkaðar verða aldrei gerðar nema í sátt og með aðkomu verkalýðshreyfingar. Allavega ekki á minni vakt. En það gætu falist mikil tækifæri í því fyrir atvinnulífið, launafólk og samfélagið allt að koma á meiri stöðugleika. Og þess vegna hef ég lagt til að umræða um leiðir að því marki fari fram – samhliða því sem við búum í haginn fyrir næstu kjarasamninga. V. Þingfulltrúar. Í ræðu minni á ársfundi Samtaka atvinnulífsins höfðaði ég til þeirra um að sjá og nýta tækifærin með ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins – til að vinna saman, láta verkin tala og styrkja Ísland. Því þó að við verðum ekki öll sammála um allt þá getum við sameinast um þetta: Við eigum eitthvað algjörlega sérstakt saman hérna á Íslandi – sem vekur stolt og bindur okkur saman sem þjóð – sem við viljum vernda og varðveita áfram. Og þar hefur hvert og eitt okkar mikilvægu hlutverki að gegna. Ég veit að þetta eru skilaboð sem eiga góðan hljómgrunn hér í þessum sal. Því að það er fleira sem brennur á félagsfólki í verkalýðshreyfingunni en krónur og aurar í eigin veski. Og það er enn stærri mynd sem við tökum ábyrgð á í sameiningu – sem er sjálfsmynd þjóðar og framtíð Íslands. Þegar sagt er að stjórnmál skipti ekki máli – að allir flokkar séu eins – að baráttan skili okkur engu; þá má benda á verkin á fyrstu tveimur árum þessarar ríkisstjórnar: Lífeyrir fylgir launum, þjóðarátak í fjölgun hjúkrunarrýma og besta staða Landspítala á þessari öld. Stóraukið viðhald á vegum, stofnun innviðafélags og fyrstu undirbúningsframkvæmdir við jarðgöng í áratug. Fyrsta atvinnustefna Íslands, orkuöflun, einföldun regluverks, fækkun stofnana og mesta fjárfesting hjá íslensku atvinnulífi í 50 ár – að frátöldum árunum fyrir hrun. Stækkun verknámsskóla, stjórn á útlendingamálum, fjölgun lögreglumanna, lækkun raforkuverðs í dreifbýli, betra námslánakerfi og ekkert barn á bið eftir meðferðarheimilum stjórnvalda. Verðhækkanir á húsnæðismarkaði stöðvaðar, hlutdeildarlán sem virka, tekið á Airbnb, skrúfað fyrir skattahvata til að safna íbúðum og hæsta hlutfall fyrstu kaupenda frá árinu 2008. Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks. Leiðrétting veiðigjalda. Þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Loforð gefin – loforð efnd. En þetta er bara byrjunin. Kjörtímabilið er hálfnað. Og við erum komin í gang. Ég er ekki komin hingað til að segja ykkur að allt sé fullkomið eða að allt þetta sem gengur svo vel á Íslandi sé ríkisstjórninni að þakka. Alls ekki – enda vinnst ekkert í stjórnmálum með stórum orðum heldur aðeins með stórum verkum. Ég er líka fyllilega meðvituð um framlag forvera minna úr ýmsum flokkum. Og það eru ærin verkefni framundan. En ef við horfum á stóru myndina þá blasir við að það er margt sem við getum gert og margt sem við getum sameinast um að gera enn betur á Íslandi. Leysum mál. Brjótum niður vantraust og byggjum upp traust. Og keyrum á samstöðu – sem færir fólkið í landinu nær hvert öðru en ekki fjær. Hvort sem er í Alþýðusambandinu, í landstjórninni eða í samfélaginu í heild. VI. Kæru félagar. Hvernig sem á það er litið hefur stóra myndin oft verið dekkri í stjórnmálastarfi verkalýðs og alþýðu. Í upphafi var Jón Baldvinsson einn síns liðs á Alþingi – til dæmis þegar Vökulögin voru samþykkt sem kváðu á um lögbundinn hvíldartíma togarasjómanna. Og á þeim tíma tókust á í verkalýðshreyfingunni lýðræðissinnaðir og byltingarsinnaðir jafnaðarmenn – sem lyktaði með klofningi. En þegar hann lést árið 1938, og mælti þau orð sem ég lagði út af í upphafi ræðunnar, þá hafði hann leitt verkalýðshreyfinguna til öndvegis við stjórn landsmála, á kreppuárunum, í Stjórn hinna vinnandi stétta. Hugsið ykkur árangurinn og sleitulausa stritið – sem hefur lagt grunninn að farsælustu samfélögum heims hér á Norðurlöndum. Þannig lá leiðin frá vonleysi til vonar. Og frá von til sigurs. En þetta byrjaði allt með þeirri róttæku hugmynd að fólkið gæti stjórnað sér sjálft. Við erum sterkari saman. Rísum undir ábyrgð okkar. Og höldum áfram að sigra.
Stéttarfélög ASÍ Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira