Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. október 2026 13:58 Töluverður fjöldi barna og ungmenna nota fölsuð skilríki til að komast inn á skemmtistaði í miðbæ Reykjavíku. vísir/viktor freyr Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar foreldra og forráðamenn barna og ungmenna við VPN-stillingu sem gerir óviðkomandi kleift að lesa og breyta netumferð þeirra. Yfir 300 ungmenni nota fyrirbærið en lögreglan rannsakar nú sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Neðst í fréttinni má finna ráð til foreldra frá lögreglunni. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en hann er grunaður um að hafa selt hundruðum ólögráða ungmenna fölsuð skilríki. Það var gert með þeim hætti að ungmennin keyptu aðgengi að vef eða að snjallsímaforriti fyrir Apple iPhone. VPN (Virtual Private Network) er sýndarnet sem gerir þér kleift að tengjast internetinu með auknu næði og öryggi. VPN virkar þannig að nettengingin þín fer í gegnum dulkóðaða tengingu við sérstakan netþjón. „Sambærilegt mál hefur áður komið upp hjá lögreglu en nú hefur bæst við sala á snjallsímaforriti sem virðist vera island.is en er ekki hið eiginlega island.is. Þá var einnig til sölu vara, svokölluð VPN-stilling (e. VPN profile) sem heitir ,,Island Surge VPN“ sem gerir það að verkum að kennitölu notandans er breytt á island.is og í netbönkum. Á farsímum þeirra sem sett hafa upp þessa VPN-stillingu, fer öll netumferð úr símanum í gegnum vefþjóna þess sem seldi þjónustuna,“ segir í tilkynningunni. Mörg hundruð ungmenni eigi hlut að máli Lögreglan segir rannsóknargögn benda til þess að mörg hundruð ungmenni eigi hlut að máli. Mælist lögreglan því til þess að foreldrar eigi samtal við börn sín um netöryggi. Það sé alvarlegt mál að framvísa fölsuðum skilríkjum og ítrekar lögreglan að það falli undir ákvæði hegningarlaga um skjalafals. Lögreglan segir ekki hægt að treysta island.is í blindni. „Þá vill lögregla beina því til allra söluaðila ávanabindandi efna, hvort heldur sem er áfengis eða nikótíns, bæði í verslunum og á vínveitingastöðum, að sú leið að skoða eingöngu island.is vafrasíðu eða island.is snjallsímaforrit sé ekki örugg til þess að staðfesta kennitölu þar sem ekki er ljóst hvort um falsaða útgáfu forritsins sé að ræða eða ekki.“ Lögreglan beinir því til viðkomandi aðila að óska eftir staðfestingu á aldri með framvísun hefðbundinna persónuskilríkja. Lögreglan á þá við nafnskírteinis, ökuskírteinis eða vegabréfs. „Til þess að VPN-stillingin virki og breyti kennitölu barnsins lætur stillingin símann treysta öryggisskírteini frá söluaðila þjónustunnar og beinir þannig netumferð símans í gegnum sína eigin netþjóna. Þar er umferðin stöðvuð, opnuð, lesin og í framhaldinu er henni breytt áður en hún er send til baka í símann aftur. Segja má að það sé ekki lengur víst hver það er sem heldur á lyklinum að hengilásnum í vafranum,“ segir í tilkynningunni. Ungmenni greiði fyrir þjónustuna á netinu Lögreglan líkir venjulegri netumferð við bréf í innsigluðu umslagi. Aðeins síminn og umrædd vefsíða geti opnað það. Með þessum VPN-stillingum hafi síminn fengið fyrirmæli um að samþykkja líka innsigli frá ókunnugum aðila. Sá aðili geti tekið umslagið, opnað það, lesið bréfið, breytt því og innsiglað það aftur. Síminn sýnir áfram hengilásinn eins og ekkert hafi í skorist. Það sem rannsókn lögreglu hafi leitt í ljós: VPN-stillingin (e. VPN profile) er sett upp í einu lagi og inniheldur bæði VPN-tengingu og öryggisskírteini sem nefnist „Surge CA“. Notandinn þarf sjálfur að virkja traust á skírteininu í stillingum símans. Til að kaupa þjónustuna þurftu ungmennin að slá inn rétta kennitölu sína og greiða á netinu í gegnum greiðslumiðlunina Stripe. Rekstraraðilinn hefur því undir höndum raunverulega kennitölu barnsins, fullt nafn, netfang og í nokkrum tilfellum ljósmynd og þann aldur sem það valdi að sýna. Tilgangur þjónustunnar er að breyta upplýsingum sem birtast á island.is og í netbönkum. Stjórnandi þjónustunnar breytir því kennitölu sem birtist í netbankanum og á island.is. Töluverð áhætta sem fylgi tækninni Lögreglan segir jafnframt áhættu fylgja þessu fyrirkomulagi og tekur fram að ef umrætt kerfi er sett upp í tæki sé meðal annars hægt að lesa umferðina, breyta henni og þá er kennitala viðkomandi skráð í kerfinu. Gögn notanda eru einnig farin úr landi. Persónuupplýsingar barnsins fara þá út fyrir Ísland og yfirráð evrópska efnahagssvæðisins. „Umfangið má víkka hvenær sem er, án vitneskju notandans. Síminn treystir skírteininu gagnvart öllum vefsíðum, ekki aðeins island.is og bönkunum. Rekstraraðilinn gæti byrjað að skoða umferð tengda tölvupósti, samfélagsmiðlum eða öðrum skilaboðum og síminn sýndi áfram að tengingin væri örugg.“ Hvað geta foreldrar gert? Hér fyrir neðan geta foreldrar nálgast upplýsingar um hvað skuli gera ef grunur leikur á um að barnið þeirra sé með VPN-stillingu í símanum sínum. Athugið hvort VPN stillingin (e. VPN profile) sé uppsett. Á iPhone eða iPad: Settings → General → VPN & Device Management. Leitið að stillingu sem heitir „Island Surge VPN“. Athugið hvort skírteinið sé uppsett á símanum. Settings → General → About → Certificate Trust Settings. Ef skírteini sem hafa nafnið „Surge Generated CA“ er þar og kveikt á því er VPN stillingin virk. Fjarlægið stillinguna.Í VPN & Device Management: Veljið stillinguna og síðan Remove Profile. Þá hverfur skírteinið og VPN-tengingin líka. Breytið aðgangsorðum að netbanka og fylgist með bankareikningum sem notaðir voru á meðan VPN stillingin var virk og tilkynnið allt sem er óvenjulegt til ykkar viðskiptabanka. Hafið samband við ykkar viðskiptabanka ef grunur vaknar um misnotkun. Lögregla mun bjóða upp á að aðstoða foreldra/forráðamenn við að taka stillinguna út á morgun, fimmtudaginn 15. október, á milli kl. 11 og 12 á lögreglustöðinni við Hverfisgötu (inngangur nær Snorrabraut). Lögreglumál Netglæpir Netöryggi Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
VPN (Virtual Private Network) er sýndarnet sem gerir þér kleift að tengjast internetinu með auknu næði og öryggi. VPN virkar þannig að nettengingin þín fer í gegnum dulkóðaða tengingu við sérstakan netþjón.
Athugið hvort VPN stillingin (e. VPN profile) sé uppsett. Á iPhone eða iPad: Settings → General → VPN & Device Management. Leitið að stillingu sem heitir „Island Surge VPN“. Athugið hvort skírteinið sé uppsett á símanum. Settings → General → About → Certificate Trust Settings. Ef skírteini sem hafa nafnið „Surge Generated CA“ er þar og kveikt á því er VPN stillingin virk. Fjarlægið stillinguna.Í VPN & Device Management: Veljið stillinguna og síðan Remove Profile. Þá hverfur skírteinið og VPN-tengingin líka. Breytið aðgangsorðum að netbanka og fylgist með bankareikningum sem notaðir voru á meðan VPN stillingin var virk og tilkynnið allt sem er óvenjulegt til ykkar viðskiptabanka. Hafið samband við ykkar viðskiptabanka ef grunur vaknar um misnotkun. Lögregla mun bjóða upp á að aðstoða foreldra/forráðamenn við að taka stillinguna út á morgun, fimmtudaginn 15. október, á milli kl. 11 og 12 á lögreglustöðinni við Hverfisgötu (inngangur nær Snorrabraut).
Lögreglumál Netglæpir Netöryggi Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira