Erlent

Bein út­sending: Tölur berast frá kjör­stöðum vestan­hafs

Samúel Karl Ólason skrifar
Kjósandi í Vermont í Bandaríkjunum.
Kjósandi í Vermont í Bandaríkjunum. AP/Kristopher Radder, Brattleboro Reformer.

Milljónir Bandaríkjamanna hafa greitt atkvæði í þingkosningum í dag, sem munu hafa mikil áhrif á síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti forseta. Líklegt er að Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni, ef marka má kannanir.  Einnig eru líkur á því að þeir nái meirihluta í öldungadeildinni, fari allt á besta veg fyrir Demókrata.

Í Bandaríkjunum er mjög algengt að ráðandi fylking komi illa út úr kosningum á miðju kjörtímabili forseta. Víða eru þó vísbendingar um að Repúblikanar geti komið sérstaklega illa út úr þessum kosningum.

Trump hefur mælst sögulega óvinsæll forseti.

Sjá einnig: Fram­tíð Trump í húfi á kjör­degi í Banda­ríkjunum

Kjósendur víðsvegar um Bandaríkin hafa í samtali við AP-fréttaveituna sagt að Trump hafi haft slæmi áhrif á hagkerfi Bandaríkjanna. Um tveir þriðju þeirra sögðu áhrifin slæm en einungis þrír af tíu sögðu forsetann hafa haft jákvæð áhrif.

Flestir sem rætt var við sögðu að verðlag og spilling væru helstu málefnin sem þeir hefðu í huga fyrir kosningarnar.

Aðstæður eru þó ekki góðar fyrir Demókrata, þar sem Repúblikanar breyttu kjördæmum þeim í hag víða um Bandaríkin, í ríkjum þar sem þeir stjórna, í aðdraganda kosninganna. Þeim tókst að hagnast töluvert meira á slíkum breytingum en Demókrötum tókst í kjördæmastríðunum svokölluðu í sumar og í haust.

Kortin líklega blá í fyrstu

Fjölmiðlar vestanhafs segja að kjörsókn virðist ætla að vera töluverð að þessu sinni. Hún er iðulega minni í þingkosningum en í forsetakosningum.

Fyrstu tölur eru frá Indiana og Kentucky, þar sem kjörstöðum er lokað klukkan ellefu að íslenskum tíma. Kjörstöðum í fleiri ríkjum er svo lokað á miðnætti og svo halda lokanirnar áfram í gegnum nóttina, vestur yfir Bandaríkin.

Síðustu ríkin verða Alaska og Havaí en þar loka kjörstaðir klukkan sex í fyrramálið.

Sérfræðingar hafa varað við því að fyrstu tölur í kjördæmum Bandaríkjanna muni líklega vera meira Demókrötum í vil en Repúblikönum. Það er vegna þess að kjósendur Demókrataflokksins eru líklegri til að kjósa utan kjörfundar en kjósendur Repúblikanaflokksins.

Næturhrafnar geta fylgst með Steve Kornacki, talnasérfræðingi NBC News, fara yfir nýjustu tölurnar um leið og þær berast í nótt í spilaranum hér að neðan. Hann er með sérstaka útsendingu sem snýr eingöngu að umfjöllun hans um tölurnar.

Talning mun að öllum líkindum taka nokkra daga og þá sérstaklega í ríkjum eins og Kaliforníu, Maine og Alaska. Úrslitin og það hverjir stjórna hvaða deild Bandaríkjaþings gæti ekki orðið ljóst strax.

Í forsetakosningunum 2024 tók það átta daga að komast að niðurstöðu um meirihluta í fulltrúadeildinni. Þá var ljóst hver var í meirihluta í öldungadeildinni strax um nóttina eftir kjördag.

Staðan var svipuð í þingkosningunum 2022 en þá tók einnig átta daga að sjá hvaða flokkur stjórnaði fulltrúadeildinni en það tók fjóra daga að fá úrslitin í öldungadeildinni.

Vísir verður með allar helstu niðurstöður sem munu liggja fyrir eldsnemma í fyrramálið.

Hér að neðan má fylgjast með umfjöllun AP-fréttaveitunnar um kosningarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×